Býður brúðkaupsferðina upp á eBay Kjartan Atli Kjartansson skrifar 5. janúar 2015 14:38 Hér má sjá John Whitbread.
Málshátturinn „neyðin kennir naktri konu að spinna“ gæti átt vel við hin enska John Whitbread sem býður nú upp brúðkaupsferðina sína í gegnum eBay. John, sem er 32 ára gamall, keypti ferð til Dóminíska lýðveldisins og hafði í hyggju að fara þangað með eiginkonu sinni, en þau átti á gifta sig þann 14. febrúar næstkomandi, á sjálfan Valentínusardaginn. En unnustan hætti við; vildi ekki gifta sig en John hafði þá þegar greitt fyrir brúðkaupsferðina. Ferðin kostaði sitt, um áttahundruð þúsund krónur fyrir tvo í tvær vikur, enda keypti hann gistingu á fjögurra stjörnu hóteli með öllu inniföldu. John gat ekki fengið ferðina endurgreidda og ákvað því að bjóða einhverri konu með sér, í staðinn fyrir að láta ferðalagið renna út. „Ég býð þetta einstaka tækifæri, þetta verður saga sem þið getið sagt barnabörnunum ykkar frá. Þetta verður ævintýri sem þið munuð alltaf muna eftir,“ segir hann. Óheppnin virðist elta John. Samkvæmt miðlinum Derby Telegraph var hann kominn með boð upp á um 200 þúsund krónur í gegnum uppboðsvefinn. En síðan lenti hann í vandræðum með aðgang sinn að vefnum og þurfti að bjóða ferðina upp aftur. Hæsta boðið er nú 10 þúsund krónur, en mun eflaust hækka. John segist ekki bera neinn kala til fyrrum unnustu sinnar. „Ég er bara þakklátur að hún sagði mér þetta áður en við giftum okkur. Ég virði hana fyrir hreinskilnina.“ John lýsir sjálfum sér sem grönnum manni í kringum 180 sentímetra á hæð. Hann segist ekki vera með sakaskrá. „En stundum þyrfti að læsa mig inni fyrir hversu hátt ég hrýt!“ segir hann. Vinur hans tekur þátt í þessu ævintýri með honum og hafa þeir í hyggju að taka ferðalagið og viðbrögð fjölskyldumeðlima upp á myndband. Þeir merkja umfjöllun sína með #girlfromthepublictodominicanrepublic á samskiptamiðlum. Hér að neðan má sjá stutt viðtal við John um málið.
Mest lesið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Brúðkaup ársins 2025 Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Lífið Laufey á landinu Lífið Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Fleiri fréttir Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Sjá meira