Hefja framkvæmdir fyrir austan Tollhúsið Atli Ísleifsson skrifar 20. apríl 2015 14:36 Framkvæmdaleyfi hefur verið veitt fyrir fornleifauppgreftri á svæðinu. Mynd/Reykjavíkurborg
Framkvæmdir eru nú að hefjast á Austurhafnarsvæðinu fyrir austan Tollhúsið. Bílastæðum bílastæðasjóðs á svæðinu verður því lokað frá og með fimmtudeginum 23. apríl. Á vef Reykjavíkurborgar segir að svæðið sem um ræðir sæe fyrir austan Tollhúsið en þar hafi verið 198 bílastæði. „Bílastæðasjóður bendir á nærliggjandi bílastæði á Miðbakka, í bílastæðahúsunum í Kolaport og í Hörpu. Hægt er að nálgast upplýsingar um laus stæði í bílastæðahúsum Bílastæðasjóðs hér.“ Framkvæmdaleyfi hefur verið veitt fyrir fornleifauppgreftri á svæðinu. Að honum loknum mun reiturinn fara í uppbyggingu og byggjast upp á næstu þremur árum. „Svæðið afmarkast af Geirsgötu til norðurs, Kalkofnsvegi og Lækjargötu til austurs, Hafnarstræti til suðurs og Tollhúsinu til vesturs. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi fyrir reitinn má byggja íbúðir og skrifstofuhúsnæði á reitnum, alls 21.400 m2 ofanjarðar. Verslun og þjónusta er á jarðhæðum og má vera á neðstu tveimur hæðum. Göngugata verður í gegnum svæðið frá Lækjartorgi að Hörpu. Bílastæðakjallari verður undir reitnum og mun hann síðar tengjast bílakjallara undir reitum 5 og 6 á Austurhafnarsvæðinu, hinum megin við Geirsgötu og bílakjallara Hörpu,“ segir í fréttinni. Sjá má upplýsingar um deiliskipulag Austurhafnar á vef Reykjavíkurborgar.
Mest lesið Loka fyrir umferð til að rannsaka banaslys Innlent Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Innlent Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Innlent Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Innlent Rúta skíðlogar í Hafnarfirði Innlent Neita öll sök í Reykholtsmálinu Innlent Pósturinn sendir starfsmanninn í leyfi Innlent Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Erlent Tilkynnt um mann með sverð Innlent Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Erlent Fleiri fréttir Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Kjartan Atli leiðir Samfylkinguna í Garðabæ Heimsmarkaðsverð í hæstu hæðum, sannir aðdáendur Laufeyjar og harka í ESB umræðum Tilkynnt um mann með sverð Stöðvuðu stút með naglamottu „Ég hef aldrei heyrt aðra eins fyrirspurn á ævinni“ Fyrsta konan sem skipuð er yfirlögregluþjónn Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Loka fyrir umferð til að rannsaka banaslys Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Rúta skíðlogar í Hafnarfirði Neita öll sök í Reykholtsmálinu Pósturinn sendir starfsmanninn í leyfi Óveðrinu slotar í bili og átak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Kæra aftur útboð Vestmannaeyjabæjar á líkamsræktarstöð Enginn verði á biðlista eftir hjúkrunarrými eftir þrjú ár Bein útsending: Ný áætlun fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila Flestir telja veikindarétt og starfsöryggi ríkari hjá hinu opinbera Um 500 leituðu skjóls í fjöldahjálparstöð og á hótelum Aldrei séð flóð falla á þessum stað á átján ára ferli Guðmundur Ingi snýr aftur á þing í dag „Mjög mikill fjöldi sem við vorum að taka á móti“ Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Hundruð manns í fjöldahjálparstöðvum fyrir norðan: „Það var bara snælduvitlaust veður“ Eldur kviknaði í fjölbýli í Úlfarsárdal Þrír fluttir á slysadeild ofan af Hellisheiðinni eftir tvo árekstra Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Rúta út af og Þingvallavegi lokað Tvö snjóflóð skammt frá byggð í Siglufirði Sjá meira