Vonast til að leggja ESÍ niður á næsta ári Þorbjörn Þórðarson skrifar 21. desember 2015 12:06 Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Stjórnendur Seðlabanka Íslands vonast til þess að hægt verði að leggja niður Eignasafn Seðlabanka Íslands (ESÍ) á komandi ári enda hafi það aðeins átt að vera tímabundið. Seðlabankinn hefur skilað greinargerð vegna spurninga umboðsmanns Alþingis um félagið. Umboðsmaður Alþingis telur vafa undirorpið hvort skýr lagaheimild hafi verið fyrir stofnun einkahlutafélagsins Eignasafns Seðlabanka Íslands og var þetta meðal þess sem umboðsmaður spurðist fyrir um í bréfi sínu til Seðlabankas frá 2. október sl. Eignasafn Seðlabanka Íslands, ESÍ, á eignir upp á hundruð milljarða króna sem ríkissjóður leysti til sín eftir banka- og gjaldeyrishrunið. Í greinargerð Seðlabankans um bréfið sem birtist í dag segir m.a: „Mikilvægt er að efnahagsreikningur Seðlabankans endurspegli lögbundið meginhlutverk bankans. Því var ákveðið að aðgreina þær eignir sem tengdust bankahruninu og voru ekki tiltækar sem peningalegt stjórntæki frá öðrum eignum á efnahagsreikningi Seðlabankans.“ Í bréfinu segir að þessu markmiði hefði ekki verið hægt að ná fram á jafn skýran hátt ef eignir sem færðar voru ESÍ hefðu áfram staðið á efnahagsreikningi Seðlabankans án aðskilnaðar frá öðrum eignum. Síðan segir: „Þegar kröfur hafa verið innheimtar og eignir seldar hefur félagið lokið hlutverki sínu og verður slitið. Jafnvel er vonast til þess að hægt verði að leggja niður ESÍ á komandi ári.“ Þegar stjórnvald tekur ákvörðun um ráðstöfun eigna ríkisins gilda um það reglur stjórnsýsluréttarins. Þetta kemur fram í dómum Hæstaréttar og eitt af því sem umboðsmaður nefndi í bréfi sínu til Seðlabankans og virtist hafa áhyggjur af, þ.e. að starfsmenn ESÍ kæmu fram eins og um einkahlutafélag væri að ræða án tengsla við ríkið. Trausti Fannar Valsson dósent við lagadeild HÍ hefur tekið undir þessi sjónarmið og sagði eðlilegt að það þyrfti skýra lagaheimild. „Það er verið að færa starfsemi opinbers aðila yfir í hlutafélagaform. Það er að öllu jöfnu eðlilegt að Alþingi taki ákvörðun um slíka þætti vegna þess að við gerum greinarmun á starfsemi hlutafélaga og ríkisins,“ sagði Trausti m.a.Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis. 365/GVAEkki hefðbundin stjórnsýsla Um þetta segir í bréfi Seðlabankans: „Starfsemi félagsins felur ekki í sér hefðbundna stjórnsýslu, því hefur ekki verið falið að taka stjórnvaldsákvarðanir heldur hefur það með höndum innheimtu og fullnustu krafna og sölu fullnustueigna.“ Seðlabankinn hefur byggt heimild sína til þess að stofna einkahlutafélagið ESÍ aðallega á 17. gr. seðlabankalaga og á 3. gr. laga um einkahlutafélög til fyllingar. Í 1. mgr. 17. gr. seðlabankalaga er að finna heimild fyrir bankann til að stunda önnur banka- og verðbréfaviðskipti sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka. Í öðrum málslið sama ákvæðis segir síðan: „Í því skyni er bankanum meðal annars heimilt að eiga aðild að og hlut í fyrirtækjum og stofnunum á sviði kauphallarstarfsemi, verðbréfaskráningar og greiðslukerfa.“ Seðlabankinn áréttar þetta í umsögn sinni um bréf umboðsmanns. Svo gefa stjórnendur Seðlabankans lítið fyrir rökstuðning umboðsmanns fyrir því að ekki hafi verið skýr lagaheimild fyrir stofnun ESÍ með svofelldum orðum. „Í bréfi UA er hvorki gerð nein fullburða tilraun til þess að skýra ákvæði 17. gr. seðlabankalaga né heldur að hrekja áður fram komin lagarök bankans.“
Mest lesið Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? Viðskipti innlent Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Viðskipti innlent Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis Neytendur Valsstelpa í lyfjabyltingu: „Ég var alltaf svolítið skrýtin blanda“ Atvinnulíf Vélfag stefnir ríkinu Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Viðskipti innlent Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Viðskipti innlent Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Sjá meira