Fjölmennt lið lögreglu kallað til vegna upplausnarástands í hegningahúsinu Birgir Olgeirsson skrifar 21. desember 2015 13:23 Fangar hótuðu að kveikja í klefum hver hjá öðrum í hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Vísir/E.Ó.
Alvarlegt ástand skapaðist í hegningarhúsinu við Skólavörðustíg laugardaginn 12. desember. Kalla þurfti til lögreglu og auka mannskap vegna ósættis á milli þriggja fanga í hegningarhúsinu. Höfðu þeir meðal annars uppi hótanir um að kveikja í klefum hver hjá öðrum. Tólf lögreglumenn og sex fangaverði þurfti til að koma böndum á fangana. „Það komust fíkniefni inn í fangelsið, eins og gerist stundum, og þá getur ástandið orðið svona,“ segir Páll Winkel fangelsismálastjóri. Hann segir þetta atvik ekki geta talist óeðlilegt miðað við hvað starfsmenn fangelsismálastofnunar hafa fengist áður við.Höfðu fangarnir meðal annars uppi hótanir um að kveikja í klefum hver hjá öðrum í hegningarhúsinu. Vísir/GVAHann segir umfang aðgerðarinnar ekki hafa verið mikið heldur hafi verið um að ræða mjög ákveðið og skýrt verklag sem fer í gang innan fangelsisins þegar svona atvik koma upp. „Það er ýmist kallaður út mannskapur eða hringt á lögreglu. Svo eru málin afgreidd,“ segir Páll og ítrekar að á engum tímapunkti hafi skapast hættuástand í fangelsinu og höfðu fangaverðir og lögreglumenn fulla stjórn á aðstæðum. „Það kom ekki til átaka. Þetta voru bara ungir menn að æsa sig, þegar þeir safnast nokkrir saman getur það orðið snúið. “ Skilja þurfti fangana að og segir Páll það hafa verið afar mikilvæga aðgerð. „Hluti þeirra var færður á Litla-Hraun og svo var bara skipt niður á fangelsi. Það þurfti að aðskilja þessa fanga. Menn fúnkera misvel saman í hópi. Stundum eru menn úr sömu málum saman í fangelsi og var þessi aðskilnaður mjög mikilvægur.“ Hann segir þá sem starfa við fangelsismál á Íslandi telja niður þar til nýja fangelsið verður opnað á Hólmsheiði á vormánuðum. „Þar verður hægt að skilja svona hópa að með einföldum hætti. Það eru stærri tímamót og jákvæðari tímamót en hafa átt sér stað í fangelsismálum í marga áratugi.“
Mest lesið Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Innlent Dagný Ósk látin Innlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Innlent Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Veturinn verði Rússum erfiður Erlent Rúta með skólabörn um borð fór út af veginum Innlent Þakplötur og trampólín á flugi Innlent Fleiri fréttir Annað innbrotið á árinu: „Það var svo mikið blóð“ Sautján voru handteknir í aðgerðum lögreglu Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Rokið, haustlitir og lauf út um allar trissur Fjöldi sjálfsvíga svipaður og fyrri ár Björn Leví telur einsýnt að Guðmundur Ingi hafi verið beittur ofbeldi Tilkynningar um heimilisofbeldi milli foreldra og barna tvöfaldast 350 milljóna tekjur Þingvalla í húfi vegna náttúrupassa Dapurlegt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálfsögðum rétti Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Bókun 35 og óveður setur strik í reikninginn Pallborð: Klukkan tifar og staðan sögð viðkvæm Rúta með skólabörn um borð fór út af veginum Þakplötur og trampólín á flugi Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Borgarverk með lægsta boð í Þjórsárbrú og Búðafossveg Meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns til ákæranda Sjöfalt fleiri útköll en sami fjöldi sérsveitarmanna Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Segja upp tveimur sérfræðingum Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Þúsundir barna bíða mánuðum saman „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Hjólreiðamaður slasaðist en reiðhjólið í lagi Efnaleki á Óseyri og fólk beðið um að halda sig fjarri Quang Lé frjáls sinna ferða Sjá meira