Páll Winkel og skjólstæðingar hans Ingibjörg Kristjánsdóttir skrifar 20. nóvember 2015 07:00 Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar, kemur reglulega fram í fjölmiðlum og ræðir þar ýmislegt er viðkemur fangelsismálum, frelsissviptingu og betrun. Það vekur hins vegar furðu mína að samhliða annars málefnalegri umræðu, hefur Páll ítrekað veist ómaklega að ákveðnum skjólstæðingum sínum í fangelsinu á Kvíabryggju. Hann brýtur á þeim sem ekki geta varið sig og hefur orðið uppvís að því að fara með rangt mál. Einn þeirra sem Páll hefur brotið á er eiginmaður minn, Ólafur Ólafsson, sem afplánar þar dóm.Páll brýtur reglur Nýverið lýsti Páll Winkel yfir hneykslan sinni á því að ákveðnir fangar hafi farið fram á að stunda nám í reiðmennsku. Um er að ræða fjarnám skipulagt af Endurmenntunardeild Landbúnaðarháskóla Íslands. Verklegi hluti námsins átti að fara fram á næsta bæ við Kvíabryggju. Páll staðfestir í samtali við blaðamann á visir.is þann 10. nóvember að námið hafi verið „stoppað af, á síðustu stundu“. Í grein um málið eru birt tölvusamskipti Páls við rektor Landbúnaðarháskólans frá 28. október. Þar lætur hann sem hann hafi ekki haft nokkra aðkomu að málinu fyrr en skömmu áður. Hann reynir að gera þátt Landbúnaðarháskólans á einhvern hátt tortryggilegan og tekur fram að hann muni að öllum líkindum birta samskiptin opinberlega. Það má glöggt sjá að pósturinn er skrifaður með það fyrir augum er hann skrifar: „(Ég) áskil (mér) rétt til að birta spurningar þessar sem og svör enda ekkert í rekstri Fangelsismálastofnunar sem ekki þoli umfjöllun ef frá eru taldar persónugreinanlegar upplýsingar.“ Páll bætir um betur daginn eftir og mætir í viðtal á RÚV, þar sem hann ræðir mjög frjálslega og allt að því háðslega um þetta sama mál og þessa sömu menn. Þar slær hann sjálfan sig til riddara fyrir að hafa stoppað námið og mærir „fjórða valdið“ sem hetjur dagsins fyrir að hafa vakið athygli hans á málinu. Páll nefnir ekki nöfn skjólstæðinga sinna, en enginn velkist í vafa um hverja átt er við. Þegar dagskrárgerðarmaðurinn spyr: „Það liggur í loftinu að þú sért að tala um Kvíabryggju og það fólk sem í daglegu tali hefur verið nefnt útrásarvíkingar.“ þá svarar Páll: „?Það er mjög lítill hópur fanga sem hefur aðgengi að mörgum milljónum?…“ Ekki veit ég hvort þetta eru strangt til tekið persónugreinanlegar upplýsingar en Páll veit að hlustendur átta sig á því um hverja ræðir. Hann veit að með frétt Vísis frá deginum áður voru birtar myndir af Ólafi og samföngum hans í sama máli. Páll Winkel hefur því brotið á skjólstæðingum sínum sem forstjóri Fangelsismálastofnunar, með því að tjá sig opinberlega um einkamál þeirra.Páll fer með ósannindi En Páll fer einnig með rangt mál þegar hann heldur því fram að hann hafi stoppað námið á síðustu stundu. Sannleikurinn er sá að beiðnin um reiðnámið var í skoðun hjá Fangelsismálastofnun frá því snemma í sumar. Sömu stofnun og Páll stýrir. Fangelsismálastofnun gaf leyfi fyrir náminu þann 1. september og leyfið var aldrei dregið til baka, eins og Páll vill láta í veðri vaka, heldur þvert á móti staðfest 2. nóvember með ákveðnum takmörkunum á hluta námsins sem voru þess eðlis að fangarnir ákváðu sjálfir að hætta við. Tölvusamskipti sem staðfesta þessa atburðarás liggja fyrir. Það er því rangt sem Páll Winkel heldur fram opinberlega að hann hafi stöðvað námið. Það er óskiljanlegt að Páll Winkel sem forstjóri Fangelsismálastofnunar fari með ósannindi um skjólstæðinga sína. Það er jafn ótrúlegt að forstjórinn ræði málefni einstakra fanga, eða hóps fanga, opinberlega með þeim hætti að enginn velkist í vafa um hverja er verið að ræða. Páll veit sem er að föngum er bannað samkvæmt lögum að tjá sig í fjölmiðlum nema með sérstöku leyfi hans sjálfs. Hann áskilur sér rétt til að lesa yfir og ritskoða allt sem frá fangelsinu fer. Fangar hafa ekki aðgang að samfélagsmiðlum og mega ekki tjá sig í athugasemdakerfum fjölmiðla. Þeir geta því ekki svarað fyrir sig. Hver sem tilgangur Páls með þessu upphlaupi er, þá er ljóst að í þessu máli hefur hann ekki gætt hagsmuna skjólstæðinga sinna, með þeim hætti sem embættismaður í hans stöðu á skilyrðislaust að gera. Framganga Páls er sérlega ósmekkleg í ljósi þess að hann veit manna best að frelsissviptingin ein og sér er mönnum nógu erfið þó mannréttindi þeirra séu ekki brotin samhliða. Þetta hefur hann gert á kostnað skjólstæðinga sinna, fanga sem eiga sér fáa málsvara í þjóðfélagi haturs og hefnigirni, fanga sem Páll veit að er óheimilt að tjá sig í fjölmiðlum. Fangarnir eru því varnarlausir gegn aðför forstjóra Fangelsismálastofnunar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þjónusturof hefst í dag Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun „Mér sýnist Inga Sæland fá talsvert út úr þessu“ Sigurjón Arnórsson Skoðun Hvað með dansinn? Lilja Björk Haraldsdóttir Skoðun Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley Skoðun Viðhorf sem mótar veruleikann – inngilding á orði og á borði Sóldís Birta Reynisdóttir Skoðun Hallgrímur, málið snýst því miður ekki bara um kebab Snorri Másson Skoðun Skortur á metnaði í loftslagsmálum Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson Skoðun Spilavíti er og verður spilavíti Tryggvi Rúnar Brynjarsson Skoðun Verjum frelsið og mannréttindin Sigurjón Njarðarson Skoðun Tími til kominn að styðja öll framúrskarandi ungmenni Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tími til kominn að styðja öll framúrskarandi ungmenni Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Hvað með dansinn? Lilja Björk Haraldsdóttir skrifar Skoðun Mótórhjólasamtök á Íslandi – hvers vegna öll þessi læti? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Viðhorf sem mótar veruleikann – inngilding á orði og á borði Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun „Mér sýnist Inga Sæland fá talsvert út úr þessu“ Sigurjón Arnórsson skrifar Skoðun Árangur hefst hér. Með þér. Guðrún Högnadóttir skrifar Skoðun Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Þjónusturof hefst í dag Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Verjum frelsið og mannréttindin Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Spilavíti er og verður spilavíti Tryggvi Rúnar Brynjarsson skrifar Skoðun Skortur á metnaði í loftslagsmálum Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Eru stjórnarandstæðingar viljandi að misskilja samsköttun? Þórhallur Valur Benónýsson skrifar Skoðun Orðræða mótar menningu – og menningin mótar okkur öll Jóhanna Bárðardóttir skrifar Skoðun Eitt spilakort, betri spilamenning – er skaðaminnkandi Ingvar Örn Ingvarsson skrifar Skoðun Sameining sem eflir íslenskan landbúnað Egill Gautason skrifar Skoðun Konur sem stinga hvor aðra í bakið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Fjölbreytileiki er styrkleiki Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Það er list að lifa með krabbameini Hlíf Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Um kynjafræði og pólítík Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Við fylgjum þér frá getnaði til grafar Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Mega einhverf hverfa? Ármann Pálsson,Björg Torfadóttir,Sigrún Ósk,Sigurjón Már,Halldóra Hafsteins,Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Mamiko Dís Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ef þið bara hefðuð séð heiminn út frá mínum augum: Börn & ADHD Stefán Þorri Helgason skrifar Skoðun 112. liðurinn í aðgerðaáætlun í menntamálum? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson skrifar Skoðun Konur á örorku Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Drambið okkar Júlíus Valsson skrifar Skoðun Við vitum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Ekki sama hvaðan gott kemur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Börn í meðferð eiga rétt á fagfólki orð duga ekki lengur! Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Greindarskerðing eða ofurgáfur með gervigreind Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Að hafa hemil á nýjum ófjármögnuðum útgjöldum er lykillinn að sjálfbærum rekstri sveitarfélaga Jón Ingi Hákonarson skrifar Sjá meira
Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley Skoðun
Skoðun Viðhorf sem mótar veruleikann – inngilding á orði og á borði Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar
Skoðun Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley skrifar
Skoðun Eru stjórnarandstæðingar viljandi að misskilja samsköttun? Þórhallur Valur Benónýsson skrifar
Skoðun Mega einhverf hverfa? Ármann Pálsson,Björg Torfadóttir,Sigrún Ósk,Sigurjón Már,Halldóra Hafsteins,Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Mamiko Dís Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Að hafa hemil á nýjum ófjármögnuðum útgjöldum er lykillinn að sjálfbærum rekstri sveitarfélaga Jón Ingi Hákonarson skrifar
Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley Skoðun