Slóðin að kólna í rannsókn á smygli Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 12. september 2015 07:00 Norræna í höfn í Þórshöfn í Færeyjum í lok síðustu viku. Fréttablaðið/ÓKÁ
Mistök kunna að hafa verið gerð við rannsókn lögreglu á Austurlandi á umfangsmiklu fíkniefnasmygli með Norrænu sem uppgötvaðist síðasta miðvikudag. Þetta er mat sérfræðings í fíkniefnarannsóknum, sem Fréttablaðið leitaði til. 90 kíló af hörðum fíkniefnum fundust falin í bíl hollensks pars á fertugsaldri, sem nú situr í tveggja vikna gæsluvarðhaldi. Um er að ræða eitt umfangsmesta fíkniefnasmygl sem upp hefur komið hér á landi. Lögreglufulltrúi á Austurlandi svaraði Vísi svo til í gær að ekkert yrði gefið upp um málið eða einstaka þætti þess. Rannsóknin væri á viðkvæmu stigi og ætti ekki heima í fjölmiðlum. Lögregla vildi halda upplýsingum fyrir sig svo hægt væri að spyrja „menn ómengað“ í yfirheyrslum. Í yfirlýsingu Ingerar Jónsdóttur, lögreglustjóra á Austurlandi, á miðvikudag segir hún málið hafa verið unnið í samstarfi lögreglustjórans á Austurlandi, embættis tollstjóra, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og færeyskra tollayfirvalda. Þá var greint frá því í fréttum Stöðvar 2 þann sama dag að baki fundinum væri vönduð áhættugreining tollsins. Heimildarmaður blaðsins, sem hefur áratugareynslu af rannsóknum fíkniefnamála og hefur komið að rannsókn viðamikilla mála, segir margt benda til þess að rannsókn lögreglunnar á Austurlandi sé í uppnámi, slóðin sé að kólna vegna afdrifaríkra mistaka. Þannig bendi margt til þess að fíkniefnin hafi fundist fyrir hreina og klára tilviljun. Tilviljun hafi ráðið því að fréttatökulið frá Stöð 2 var á staðnum þegar fíkniefnin uppgötvuðust í bíl hollenska parsins. Sérfræðingurinn segir að ráða megi af veru sjónvarpstökufólksins að aðgerðir tollsins og lögreglu hafi ekki verið skipulagðar. Vart hafi orðið við eitthvað grunsamlegt og ákveðið að kanna það nánar. Þá segir hann það eitt að gefa út í fjölmiðlum að fundurinn hafi verið í kjölfar áhættugreiningar vera stór mistök. Þar sé um að ræða mikilvægar upplýsingar sem undir engum kringumstæðum eigi að fara til fjölmiðla. Þarna hafi verið send skilaboð til þeirra sem stóðu að innflutningnum, sem á sömu stundu hafi áttað sig á að ekki væri verið að hlera þá. Sérfræðingurinn segir viðvaningsblæ á rannsókn lögreglu á Austurlandi og menn séu hugsi yfir því að lítil rannsóknardeild á Austfjörðum skuli rannsaka jafn viðamikið og flókið mál. Spyrja mætti spurninga um hvenær sú rannsóknardeild hafi rannsakað eða upplýst flókin alþjóðleg smyglmál og kveðst hann telja að kalla ætti til færasta fólkið til að glíma við stór mál. Þannig væri tryggð hámarksnýting skattfjár og að mál séu leyst öllum til hagsbóta.Álit sérfræðingsins:Heimildarmaður Fréttablaðsins sem sérfróður er um fíkniefnarannsóknir og hefur komið að mörgum slíkum segir fyrstu mínúturnar og klukkustundirnar eftir stóran fíkniefnafund geta skipt öllu máli. Í gang fari æðisgengin atburðarás, þar sem meðal annars þurfi að hefja hleranir og kanna hvort á svæðinu séu góðkunningjar lögreglu. Oft ráðist framhald mála á þessum fyrstu klukkustundum. Hann kveðst óttast að tapast hafi dýrmætur tími fyrir austan, en kannski finnist einhvers staðar veik slóð sem ná megi með góðri aðstoð. Hún sé þó að kólna.
Tengdar fréttir Erlent par úrskurðað í gæsluvarðhald vegna fíkniefnafundarins Tollverðir og lögregla fundum um níutíu kíló af hörðum efnum við leit þegar Norræna kom til Seyðisfjarðar í gær. 9. september 2015 16:54 Fíkniefnin fundust í kjölfar áhættugreiningar tollayfirvalda Efnin fundust í kjölfar áhættugreiningar tollsins á Íslandi í samvinnu við tollayfirvöld í Færeyjum og lögreglu á Íslandi. 9. september 2015 19:00 Fíkniefni á hundruð milljóna Hald var lagt á hátt í níutíu kíló af fíkniefnum á Seyðisfirði á þriðjudagsmorgun. Ljóst er að markaðsvirðið hleypur á hundruðum milljóna. Hollenskt par var dæmt í tveggja vikna gæsluvarðhald vegna smyglsins. 10. september 2015 07:00 Yrði eitt af stærstu fíkniefnamálum Íslands Lagt var hald á umtalsvert magn af fíkniefnum í Norrænu í gær. 9. september 2015 14:38 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Stuðningur allt of lítill Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Sjá meira
Erlent par úrskurðað í gæsluvarðhald vegna fíkniefnafundarins Tollverðir og lögregla fundum um níutíu kíló af hörðum efnum við leit þegar Norræna kom til Seyðisfjarðar í gær. 9. september 2015 16:54
Fíkniefnin fundust í kjölfar áhættugreiningar tollayfirvalda Efnin fundust í kjölfar áhættugreiningar tollsins á Íslandi í samvinnu við tollayfirvöld í Færeyjum og lögreglu á Íslandi. 9. september 2015 19:00
Fíkniefni á hundruð milljóna Hald var lagt á hátt í níutíu kíló af fíkniefnum á Seyðisfirði á þriðjudagsmorgun. Ljóst er að markaðsvirðið hleypur á hundruðum milljóna. Hollenskt par var dæmt í tveggja vikna gæsluvarðhald vegna smyglsins. 10. september 2015 07:00
Yrði eitt af stærstu fíkniefnamálum Íslands Lagt var hald á umtalsvert magn af fíkniefnum í Norrænu í gær. 9. september 2015 14:38