Spánverjar búnir að velja 17 manna hóp fyrir EuroBasket Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. júní 2015 12:43 Pau Gasol er skærasta stjarna Spánar. vísir/getty
Sergio Scariolo, þjálfari spænska landsliðsins í körfubolta, hefur tilkynnt 17 manna hóp fyrir Evrópumótið, EuroBasket, í september. Spánverjar eru sem kunnugt er með Íslandi í riðli en íslensku strákarnir fá að glíma við flestar af stærstu stjörnum Spánar næsta september. Gasol-bræðurnir, Pau og Marc, eru á sínum stað í hópnum sem og Nikola Mirotic, samherji Pau Gasol hjá Chicago Bulls. Mirotic er Svartfellingur en er með spænskt ríkisfang. Aðeins einn slíkur leikmaður, sem er erlendur en hefur fengið ríkisfang, má vera í hverju liði á EuroBasket. Serge Ibaka, leikmaður Oklahoma City Thunder sem er fæddur í Lýðveldinu Kongó, er einnig með spænskt ríkisfang en hann er ekki í hópnum. Bakverðirnir José Calderón, Ricky Rubio og gamla kempan Juan Carlos Navarro eru ekki með vegna meiðsla. Meðal annarra þekktra kappa í spænska liðinu má nefna Rudy Fernández og Sergio Rodríguez en þeir léku báðir í NBA-deildinni á sínum tíma og urðu Evrópumeistarar með Spáni 2009 og 2011. Hópurinn telur sem áður sagði 17 leikmenn en Scariolo þarf að fækka þeim niður í 12 áður en EuroBasket hefst 5. september.Hópurinn í heild sinni: Felipe Reyes - Real Madrid Rudy Fernández - Real Madrid Pau Gasol - Chicago Bulls Marc Gasol - Memphis Grizzlies Sergio Llull - Real Madrid Sergio Rodríguez - Real Madrid Fernando San Emeterio - án félags Pablo Aguilar - Valencia Alex Abrines - Barcelona Dani Díez - Portland Trail Blazers Pau Ribas - Valencia Xavi Rabaseda - Movistar Estudiantes Quino Colom - Bilbao Basket Guillem Vives - Valencia Nikola Mirotic - Chicago Bulls Willy Hernangómez - Sevilla
Körfubolti Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Fótbolti HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Fótbolti Fleiri fréttir Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Sjá meira