Tugir sagðir látnir í flugslysi í Taívan Samúel Karl Ólason skrifar 23. júlí 2014 13:56 Vísir/AP
Lokauppfærsla Farþegaflugvél af gerðinni ATR-72 í eigu TransAsia Airways brotlenti í þorpinu Xixi skammt frá flugvellinum á Penghu eyju. Óttast er að 47 hafi farist og 11 manns hafa verið fluttir á sjúkrahús, samkvæmt AP fréttaveitunni. Farþegar vélarinnar voru 54 talsins og fjórir í áhöfn. Flugmenn vélarinnar hættu við í miðri lendingu og í annarri tilraun brotlenti vélin. Talið er að veður hafi ollið slysinu, en mikil rigning og rok var á svæðinu. Sterkur fellibylur gekk yfir svæðið í gær. Fjölmiðlar í Taívan segja að rigningin hafi dregið mikið úr skyggni. Um 200 hermenn voru sendir á vettvang til að hjálpa til við björgunarstörf og að leita að fólki í rústunum. Bílar hersins voru notaðir auk sjúkrabíla til að flytja fólk á sjúkrahús og var flugbjörgunarsveit tilbúin til að flytja fólk til höfuðborgar Taívan til aðhlynningar.Mikill glundroði var á vettvangi slyssins.Vísir/APUpprunalegt Flugvél brotenti í Taívan í dag og óttast er að tugir hafi farist. Fjölmiðlar í Taívan segja að 51 hafi látið lífið. Samkvæmt fyrstu fregnum brotlenti vélin í misheppnaðri nauðlendingu. Flugmenn vélarinnar munu hafa hætt við lendingu og vélin brotlent skömmu síðar á Penghu eyju við suðausturhluta Taívan. Þar mun vera mikið rok og rigning en öflugur fellibylur fór yfir svæðið í gær. 54 farþegi voru um borð samkvæmt AP fréttaveitunni og fjórir áhafnarmeðlimir. Frétinn verður uppfærð eftir því sem fleiri upplýsingar berst.Uppfært 14:12 Samkvæmt embættismönnum í Taívan létust 51 eins og áður hafði komið fram og hafa sjö verið fluttir á sjúkrahús. Flugvélin var á leið frá Taipei, höfuðborg Taívan, til Penghu sem er mitt á milli meginlands Kína og Taívan. Flugmenn voru að reyna lendingu í annað sinn og er talið að vélin hafi brotlent vegna veðurs. Flugvélin er í eigu TransAsia Airways. Myndir frá flugvellinum sýna slökkviliðsmenn að störfum, en enn er nótt í Taívan.Uppfært 14:35 Enn er unnið að því að ná fólk úr vélinni samkvæmt BBC. Slökkviliðsmenn segja að fluvélin hafi ekki náð að flugbrautinni heldur brotlent nærri. Þá segir fréttaritari BBC að sjónarvottar hafi séð mikinn eld á slysstað.Uppfært 14:55 Nú segja yfirvöld í Taívan að óttast sé að 47 hafi látist í slysinu. Ellefu manns slösuðust. Um er að ræða ATR-72 flugvél.Vísir/APBREAKING PHOTO: This was taken moments after #GE222 crashed, Huge flames seen from near the Airport. pic.twitter.com/H88ka8Nvly— Jerry Liet (@jerryliet) July 23, 2014 สื่อท้องถิ่นไต้หวันเผย ทรานสเอเชีย #GE222 บรรทุกผดส-ลูกเรือรวม 58 คน เสียชีวิตอย่างน้อย 51 คน pic.twitter.com/BTDw4XRjLE— foreigndailynews (@dailynews_world) July 23, 2014 #GE222 crash: Transport minister says 47 people dead, 11 injured http://t.co/uyYYpHeKl8 pic.twitter.com/ueaXj5OLv8— The Straits Times (@STcom) July 23, 2014 11 survivors of crashed TransAsia Airways plane #GE222 climbed out of the debris by themselves. pic.twitter.com/Ss2d9U52Xm— edde (@Edourdoo) July 23, 2014
Mest lesið Veðurvaktin: Snjókoman rétt að byrja og víða erfið færð Veður Karlmaður lést í Bláa lóninu Innlent Ungur Miðflokksmaður gengst við rasisma og segir af sér Innlent Flugmaðurinn sem fórst millilenti oft í Reykjavík Innlent Snjókoman rétt að byrja Innlent Eldur í blokk við Ljósheima Innlent Bílar út af veginum á Reykjanesbraut Innlent Hvatt til varúðar vegna snjóflóðahættu á suðvesturhorninu Innlent Biðu í fjóra tíma úti á braut og aðra fjóra við farangursbeltin Innlent Ráðgjafinn ráðinn í tímabundið starf eftir dýra skreppitúra Innlent Fleiri fréttir Andstæðingar olíuleitar Norðmanna hrósa sigri þrátt fyrir tap Skipar hernum að gera árásir á Gasa Áfrýjar sakfellingu í þagnargreiðslumálinu Sakar Evrópu um stríðsæsingu Musk í samkeppni við Wikipedia Búast við hamförum vegna Melissu Van de Velde bannað að ferðast til Ástralíu til að keppa á heimsmeistaramótinu Segja Rússa elta almenna borgara með drónum Játar að hafa myrt Shinzo Abe Undirrituðu samkomulag um fágæta málma Hljóp út í örvæntingu „með lífið í poka“ Réttað yfir tíu sem segja frönsku forsetafrúna vera karlmann Réttað yfir konu sem sagðist vera Madeleine McCann Áfjáður í að bjóða sig fram aftur í trássi við stjórnarskrá Hafa fundið Cessna-vélina Elsti forseti heims endurkjörinn í skugga mótmæla Jamaíka býr sig undir öflugasta fellibyl sem þangað hefur ratað Friður forsenda þess að erlent lið verði sent til Gasa Milei vann stórsigur í Argentínu Matarbankar segjast ekki munu anna eftirspurninni Aftökur á meintum smyglurum „ekki morð“ heldur „vörn við eitri“ Leit að flugvélinni horfnu engan árangur borið Ráðist að fjölmiðlafólki með ofbeldi og fúkyrðum Hundruðum gert að rýma vegna grjóthruns í Ósló Newsom íhugar forsetaframboð Allt undir hjá forsetanum hárprúða Óttast blóðbað við fall síðasta vígis stjórnarhersins í Darfur Bankaerfingi greiðir laun hermanna meðan ríkisstofnanir eru lokaðar Gómuðu aftur manninn sem þeir slepptu fyrir mistök Tveir handteknir vegna Louvre ránsins Sjá meira