Á rangri leið Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. október 2014 09:23 Það var vægast sagt kjarnyrt ályktun sem Samband ungra sjálfstæðismanna samþykkti á málefnaþingi um liðna helgi. Í ályktuninni er ríkisstjórnarsamstarf við Framsóknarflokkinn gagnrýnt harðlega og hugmyndir reifaðar um að því verði slitið. Það ber að taka þeim athugasemdum sem ungliðarnir gera af fullri alvöru. Alvarlegasta athugasemdin er vegna tugmilljarða króna þjóðnýtingar einkaskulda. Aðgerð sem kölluð hefur verið leiðrétting, en er í raun ekkert nema himinhá greiðsla stjórnarflokkanna fyrir atkvæði sín. Með aðgerð sem ráðist var í að frumkvæði Framsóknarflokksins en með samþykki Sjálfstæðisflokksins, sem kennir sig við frelsi og ábyrgð einstaklingsins, er fjármunum sóað, sem betur væru komnir í uppbyggingu nýs sjúkrahúss eða lækkun ríkisskulda. Það virðist líka sem verulega skorti á virðingu fyrir góðri stjórnsýslu í ráðuneytunum þessa dagana. Með stuttu millibili hefur tvisvar verið greint frá því að í bígerð sé að flytja ríkisstofnanir, eða að minnsta kosti hluta þeirra, til svæða utan Reykjavíkurborgar. Hugmyndir um flutning Fiskistofu virðast komnar sýnu lengra en hugmyndir um flutning barnaverndarmála. Engin haldbær rök hafa verið færð fyrir flutningnum, önnur en sjónarmið um eflingu byggðar. Lögfróðari menn en ég hafa bent á að Fiskistofa verður ekki flutt án þess að Alþingi samþykki lög sem heimili slíkt. Hið sama á við um breytingar á yfirstjórn barnaverndarmála. Það er ágætt, því fleiri munu þá koma að ferlinu í kringum þá ákvarðanatöku. Og þá kviknar sú spurning hvort þingmenn beggja stjórnarflokka ætli að taka þátt í þeirri grímulausu sérhagsmunagæslu framkvæmdarvaldsins sem fælist í flutningi þessara stofnana. Við það bætast svo fréttir af meðferðarheimilinu Háholti í Skagafirði. Eins og fram kom í Fréttablaðinu á mánudaginn hyggst Eygló Harðardóttir velferðarráðherra fela Barnaverndarstofu að endurnýja tæplega 500 milljóna króna þjónustusamning til þriggja ára við meðferðarheimilið Háholt í Skagafirði þrátt fyrir að Barnaverndarstofa sé eindregið á móti endurnýjun samningsins. Barnaverndarstofa segir þá meðferð fjármunanna ekki í samræmi við bestu vitund um faglegar kröfur og meðferðarþörf barna sem glíma við alvarlegan hegðunar- og/eða vímuefnavanda. Vissulega ber ráðuneyti Eyglóar ábyrgð á stefnumótun í barnavernd. Það breytir ekki þeirri staðreynd að mesta fagþekking á málaflokknum er á Barnaverndarstofu og ráðherra væri sómi af að hlusta á skoðanir stofnunarinnar. Ofan á þetta bætist svo landbúnaðarkerfi sem löngu er kominn tími til að verði endurskoðað. Ekki bara vegna frétta af því að allar tilraunir smásöluaðila til innflutnings á landbúnaðarvörum, hvort sem sambærilegar vörur eru framleiddar hér eða ekki, hafa verið kæfðar í fæðingu. Heldur líka vegna þess að Mjólkursamsalan hefur markvisst rutt samkeppnisaðilum af markaði með bolabrögðum. Varðstaða um landbúnaðarkerfið og kjördæmapot er að vísu ekkert nýtt og ekkert sem einskorðast við núverandi stjórnarflokka. En flokkar sem þora ekki að gera nauðsynlegar breytingar til heilla fyrir almenning, þeir eiga ekki erindi í stjórnarmeirihluta. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson Skoðun Bönnum Rússa en ekki Ísraela Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ábyrgð í útlendingamálum – breytingar og árangur Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldisstofnanir ríkisins ráðast á Ljósmyndara Kristján Logason skrifar Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason skrifar Skoðun Óalandi og óferjandi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar Skoðun Brjóstsviði á sumrin – þegar meltingin fer í sumarfrí Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Var samninganefndin að vinna eftir umboði Alþingis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hræsni siðferðisriddara Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“ Anna María Björnsdóttir skrifar Skoðun Er drónaskapur dónaskapur? Björn Steinbekk skrifar Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra Jónas B. Guðmundsson skrifar Skoðun Íslenskir bændur berskjaldaðir í boði RÚV Heiðbrá Ólafsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hættan við gervigreind er ekki tæknin heldur hik stjórnenda Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Hvernig losum við bílinn? Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Að geyma þá í myrkri: Varðhaldsmiðstöðin sem Ísland á ekki að reisa Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Það var vægast sagt kjarnyrt ályktun sem Samband ungra sjálfstæðismanna samþykkti á málefnaþingi um liðna helgi. Í ályktuninni er ríkisstjórnarsamstarf við Framsóknarflokkinn gagnrýnt harðlega og hugmyndir reifaðar um að því verði slitið. Það ber að taka þeim athugasemdum sem ungliðarnir gera af fullri alvöru. Alvarlegasta athugasemdin er vegna tugmilljarða króna þjóðnýtingar einkaskulda. Aðgerð sem kölluð hefur verið leiðrétting, en er í raun ekkert nema himinhá greiðsla stjórnarflokkanna fyrir atkvæði sín. Með aðgerð sem ráðist var í að frumkvæði Framsóknarflokksins en með samþykki Sjálfstæðisflokksins, sem kennir sig við frelsi og ábyrgð einstaklingsins, er fjármunum sóað, sem betur væru komnir í uppbyggingu nýs sjúkrahúss eða lækkun ríkisskulda. Það virðist líka sem verulega skorti á virðingu fyrir góðri stjórnsýslu í ráðuneytunum þessa dagana. Með stuttu millibili hefur tvisvar verið greint frá því að í bígerð sé að flytja ríkisstofnanir, eða að minnsta kosti hluta þeirra, til svæða utan Reykjavíkurborgar. Hugmyndir um flutning Fiskistofu virðast komnar sýnu lengra en hugmyndir um flutning barnaverndarmála. Engin haldbær rök hafa verið færð fyrir flutningnum, önnur en sjónarmið um eflingu byggðar. Lögfróðari menn en ég hafa bent á að Fiskistofa verður ekki flutt án þess að Alþingi samþykki lög sem heimili slíkt. Hið sama á við um breytingar á yfirstjórn barnaverndarmála. Það er ágætt, því fleiri munu þá koma að ferlinu í kringum þá ákvarðanatöku. Og þá kviknar sú spurning hvort þingmenn beggja stjórnarflokka ætli að taka þátt í þeirri grímulausu sérhagsmunagæslu framkvæmdarvaldsins sem fælist í flutningi þessara stofnana. Við það bætast svo fréttir af meðferðarheimilinu Háholti í Skagafirði. Eins og fram kom í Fréttablaðinu á mánudaginn hyggst Eygló Harðardóttir velferðarráðherra fela Barnaverndarstofu að endurnýja tæplega 500 milljóna króna þjónustusamning til þriggja ára við meðferðarheimilið Háholt í Skagafirði þrátt fyrir að Barnaverndarstofa sé eindregið á móti endurnýjun samningsins. Barnaverndarstofa segir þá meðferð fjármunanna ekki í samræmi við bestu vitund um faglegar kröfur og meðferðarþörf barna sem glíma við alvarlegan hegðunar- og/eða vímuefnavanda. Vissulega ber ráðuneyti Eyglóar ábyrgð á stefnumótun í barnavernd. Það breytir ekki þeirri staðreynd að mesta fagþekking á málaflokknum er á Barnaverndarstofu og ráðherra væri sómi af að hlusta á skoðanir stofnunarinnar. Ofan á þetta bætist svo landbúnaðarkerfi sem löngu er kominn tími til að verði endurskoðað. Ekki bara vegna frétta af því að allar tilraunir smásöluaðila til innflutnings á landbúnaðarvörum, hvort sem sambærilegar vörur eru framleiddar hér eða ekki, hafa verið kæfðar í fæðingu. Heldur líka vegna þess að Mjólkursamsalan hefur markvisst rutt samkeppnisaðilum af markaði með bolabrögðum. Varðstaða um landbúnaðarkerfið og kjördæmapot er að vísu ekkert nýtt og ekkert sem einskorðast við núverandi stjórnarflokka. En flokkar sem þora ekki að gera nauðsynlegar breytingar til heilla fyrir almenning, þeir eiga ekki erindi í stjórnarmeirihluta.
Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar
Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar
Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar
Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar
Skoðun Stærsta hættan við gervigreind er ekki tæknin heldur hik stjórnenda Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Að geyma þá í myrkri: Varðhaldsmiðstöðin sem Ísland á ekki að reisa Nichole Leigh Mosty skrifar
Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun