Ungir og aldnir saman í jóga Álfrún Pálsdóttir skrifar 7. júní 2014 10:00 Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir ásamt upprennandi litlum jóga sem heitir Hrafn Styrkár Svavarsson á fjölskyldujógadeginum í Viðey í fyrrasumar. „
Það er eitthvað við það að fara yfir sjóinn og horfa á borgina frá nýju sjónarhorni og stunda saman jóga úti í náttúrunni,“ segir Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir jógakennari, sem stendur fyrir Fjölskyldujóga í Viðey í dag milli kl. 13 og 14.30. Styrktarfélagið Jógahjartað stendur fyrir viðburðinum þar sem á dagskránni eru jógaæfingar, leikir, öndun í sjávarloftinu og hugleiðsla. „Við slökum á og njótum heilandi tóna gongsins sem er alveg magnað úti í guðsgrænni náttúrunni. Fjölskyldan hefur gott af því að komast burt frá hversdagsleikanum en þetta er náttúrufegurð sem er bara í fimm mínútna siglingarfjarlægð.“Myndir frá jógadeginum í fyrra en Arnbjörg segir mjög gott að komast út skarkala borgarinnar og horfa á hana frá orðu sjónarhorni í Viðey.Þetta er í annað sinn sem Fjölskyldujóga fer fram í Viðey og er Arnbjörg spennt fyrir deginum enda veðurspáin fyrir daginn eins og best verður á kosið. „Það var æðislegur dagur hjá okkur í fyrra enda er yndislegt að vera í eyjunni. Nú verðum við hjá Friðarsúlunni sem mér þykir vel við hæfi,“ segir Arnbjörg sem hvetur alla til að mæta og eiga endurnærandi stund í eyjunni í faðmi fjölskyldunnar. Hún bendir gestum á að taka ferjuna yfir sundið sem fer kl. 12.15. Jógahjartað er styrktarfélag sem hefur þann tilgang að bjóða aðstoð við kennslu á jóga, hugleiðslu og slökun í grunnskólum. Jógahjartað miðlar einnig þekkingu til grunnskólakennara og foreldra sem vilja vita meira um jóga. Meðlimir Jógahjartans eru átta mæður og jógakennarar sem hafa áhuga á velferð barna almennt og trúa því að jóga og hugleiðsla gefi ungu fólki betri tengingu við sjálft sig á leið sinni í gegnum menntakerfið. Hægt er að fræðast meira um samtökin á Facebook-síðu Jógahjartans.
Mest lesið Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Fleiri fréttir Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Sjá meira