Ert þú amma eða afi? Júlíana Elín Kjartansdóttir skrifar 30. september 2014 00:00 Manstu eftir tilfinningunni þegar barnabörnin komu í heiminn? Var hún ekki „ég hlakka svo til að kynnast þessum nýja einstaklingi, elska hann, aðstoða við að koma honum til manns og vera honum það sem afar mínir og ömmur voru mér“? En því miður er ekki alltaf sjálfgefið að börn fái að njóta afa og ömmu. Allt of oft þegar foreldrar barns eiga ekki samleið og eru ekki í hjúskap eða sambúð verður föðurfjölskyldan í aukahlutverki. Stundum eru umgengnistálmanir í gangi og barnið hittir ekki föður sinn og fjölskyldu hans svo mánuðum og jafnvel árum skiptir. Erfitt er að ímynda sér hvernig það er að vera foreldri og fá ekki að umgangast barnið sitt, það hlýtur að vera hræðilegt, en einnig er vont að vera amma eða afi og vera neitað um að kynnast barnabarninu sínu. Það veldur líka mikilli sorg! Skýrt er í barnalögum að öll börn eigi rétt á að þekkja og umgangast báða foreldra sína. Þegar forsjá er ekki sameiginleg er það að mestu leyti undir forsjárforeldrinu (oftast móður) komið. Ef hún af einhverjum ástæðum kærir sig ekki um að faðirinn sinni barninu sínu þá getur hún komið í veg fyrir það allt of lengi. Við viljum að allir feður séu hvattir til að sinna börnunum sínum. Langoftast er það til hagsbóta fyrir börnin.Leggið okkur lið Það eru mjög margir í sárum vegna umgengnistálmana. Allir tapa og börnin mest. Þetta þarf ekki að vera svona en það breytist ekkert nema við látum í okkur heyra. Segjum sögu sem flestra svo fólk átti sig á hvers konar óréttlæti og andlegt ofbeldi er í gangi allt of víða. Þetta málefni er ekki einkamál foreldranna. Ástæðulausar tálmanir eiga ekki að líðast! Okkur langar til að biðja ykkur, afar og ömmur, að leggja okkur lið. Félag um Foreldrajafnrétti er mannréttindafélag sem stendur fyrir rétti barna til beggja foreldra sinna og jöfnum rétti foreldra til að sinna foreldrahlutverki sínu óháð fjölskyldugerð. Í því eru forsjárlausir foreldrar, umgengnisforeldrar, fjölskyldur þeirra og aðrir sem láta sig málið varða. Hafið samband og segið frá ykkar reynslu. Vefsíðan okkar er www.foreldrajafnretti.is. Við viljum vinna að breyttum hugsunarhætti varðandi sameiginlega ábyrgð allra foreldra á umönnun barna og að kerfið verði skilvirkara til þess að koma í veg fyrir óþarfa deilur og ósamkomulag. Það þurfa allir að hjálpast að við að vekja athygli á leiðum til úrbóta. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Skoðun Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar