Er eini flugvöllurinn í Keflavík? Ragnar Sverrisson skrifar 18. september 2014 07:00 Rör eru til margra hluta nytsöm. En þegar þau eru notuð til þess að rýna flókin málefni verður útkoman ekki alltaf sem skyldi enda verður þröngsýni þá oftast ofan á. Þetta flaug í gegnum huga mér þegar ég hlustaði á vin minn Björgólf Jóhannsson á Bylgjunni í morgun (16.09.) þar sem hann fjallaði um hvað þyrfti að gera til þess að taka á móti gríðarlegri fjölgun ferðamanna til landsins næstu árin. Í þessu spjalli voru eingöngu ræddar æskilegar framkvæmdir til að bæta aðstöðuna á Keflavíkurflugvelli svo allt færi ekki í enn meiri kássu á þeim ágæta stað. Þar með er gengið út frá því að auknum fjölda erlendra ferðamanna verði einasta hleypt í gegnum einar dyr – hið gullna hlið Íslands. Þetta hlið er á Keflavíkurflugvelli og svo að skilja að þar verði allir ferðamenn til landsins að fara í gegn í framtíðinni; ekki einu sinni ástæða til að velta fyrir sér öðrum möguleikum. Þetta er þröng sýn í sinni venjulegu mynd en í máli þessu þarf meiri víðsýni.Fleiri möguleikar Eins og kunnugt er eigum við fleiri alþjóðaflugvelli en þann í Keflavík. Þess vegna er full ástæða til að ræða hvaða hlutverki þeir geta gegnt í framtíðinni við móttöku erlendra ferðamanna. Sjálfur þekki ég vel til eins þeirra, Akureyrarflugvallar, og get fullyrt að með því að byggja við flugvallarhúsið og bæta planið þar fyrir framan er hægur vandi að létta eitthvað á fluginu til Keflavíkur sem er að kaffæra allt þar á bæ. Flugbrautin á Akureyri er nú þegar nægjanlega löng til að taka á móti stærstu flugvélum og miklir möguleikar í bænum og nágrannabyggðum til að taka á móti enn fleiri erlendum ferðamönnum alla daga ársins. Því er ekki ofsagt að hér á Akureyri eru miklir möguleikar til að stórauka þjónustu við ferðamenn. Hvað getur kallast meira byggðamál en að móta og fylgja eftir markvissri atvinnustefnu á þessu sviði? Við heyrum nú harmakvein vegna ofbeitar í Keflavík á meðan ekki er hugað að því hvaða möguleikar eru fyrir hendi annars staðar sem nú eru vannýttir. Því er ástæða til að hvetja bæjarstjórn og alþingismenn kjördæmisins til að ganga fram í máli þessu og vinna markvisst að því að ljúka nauðsynlegum byggingaframkvæmdum við Akureyrarflugvöll og ganga frá planinu en efni í það bíður undir hlíðum Vaðlaheiðar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Ástþór Magnússon í spádómum? Gunnar Karl Halldórsson Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson Skoðun Halla Tómasdóttir og Sólskinsdrengurinn Margrét Dagmar Ericsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira