Allt í gríni: Seðlabankastjóri eins og allt hitt Kjartan Jóhannsson skrifar 9. júlí 2014 07:00 Nú liggur fyrir hvaða áherslur gilda við val á næsta seðlabankastjóra. Valnefnd hefur verið tilnefnd og sett til verka. Hingað til hafa sjálfsagt margir staðið í þeirri trú að seðlabankastjóri væri fyrst og fremst að fást við hagræn verkefni, það stendur víst eitthvað um það í lögum og því kannske von að ýmsir stæðu í þeirri meiningu. Nú er það vitaskuld þannig að framganga Seðlabankans að undanförnu hefur einkum birst í túlkun laga og lögleysu, banni við því sem áður var leyft og lögsókn á brotlega. Rök hljóta að standa til þess að þetta nýja hlutskipti og hlutverk Seðlabankans hafi leitt landsstjórnendur til þess að komast að þeirri niðurstöðu að hagstjórnarverkefni Seðlabankans sé orðið skör lægra sett en hæfileikinn til svipuþunga í laganna túlkun og framkvæmd við framfylgd hafta og hamla sem sett hafa verið á landsins þegna. Valið á yfirstjórnanda Seðlabankans eigi þess vegna að njóta forystu og reynslu lögreglunnar í formi hennar fremsta manns, lögreglustjórans í Reykjavík. Þau sem valist hafa til þess að velja næsta seðlabankastjóra eru sem sagt eins og lög gera ráð fyrir þrjú. Formaðurinn er hinn löglærði lögreglustjóri í Reykjavík. Hinir eru vissulega líka afbragðsfólk, lögfræðingur, reynslurík frú af búsetu í Sviss, þar sem menn kunna vel á peninga, og svo fyrrverandi prófessor með fínan akademískan bakgrunn og nýfengna dýrmæta reynslu af búskap í dvalarlandi sínu Danmörku. Allt er þetta prýðisfólk, en vilji menn telja hlutverk Seðlabankans annað en lagastúss er rökhalli á nefndarskipuninni, nema ef vera skyldi að þetta sé allt í gríni eða til þess að gantast við okkur og draga okkur blessaða þjóðfélagsþegnana á asnaeyrunum og draga dár að okkur, svona í stíl við að segja okkur að borga 200 milljónir fyrir að flytja stofnun milli landsfjórðunga í óþökk allra eða bíða eftir einhverjum Íslandspassa árum saman, gleyma að koma rafmagni til Akureyrar en láta forsetann samtímis telja þýðverskum trú um að við getum selt þeim gnægð orku líklega þó minna en 1 prósent af þörf þeirra, ef að er gáð. Það getur vel verið að fjármálaráðherra telji sér nauðsyn að standa sig í skopkeppni hinna stjórnvitringanna í hinum ýmsu stýristöðum. Mér finnst gaman að gríni og kannske ekki síst þess konar sem jaðrar við hið absúrda, en ég mundi geyma það í annað en þetta. Hér er á ferðinni að velja mann í vandasamasta og áhrifamesta embætti á sviði hagstjórnar á Íslandi. Meirihluti valnefndar hefur ekki menntun né bakgrunn í hagfræðilegum efnum en býr yfir sérkunnáttu á allt öðru sviði og málefnum. Ég er ekki viss um að svona grín sé landi okkar hollt hvorki til innlends né útlends brúks, þótt sumir kunni að skella upp úr. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar