Mannfræðingur segir merkilegt að rasistastytta hafi ekki verið fjarlægð fyrr Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 9. maí 2014 15:34 Kristín og styttan umdeilda. „
Ég velti stundum fyrir mér þessum litla vilja til að taka svona hluti burt,“ segir Kristín Loftsdóttir mannfræðingur en kaffihúsið Svarta kaffið hefur tekið niður styttu af þeldökkum þjóni sem lengi vel hefur verið eins konar einkennismerki kaffihússins. Ákveðið var að taka styttuna niður eftir fjölda neikvæðra athugasemda um hana sem settar voru inn á Facebook-síðu kaffihússins í vikunni en hafa nú verið fjarlægðar. Uppstillingin hefur þó margoft áður verið gagnrýnd, meðal annars í aðsendum bréfum ferðafólks sem birst hafa í The Reykjavík Grapevine. En hvað er það við styttur sem þessar sem gerir þær rasískar? „Það má kannski spyrja á móti, hvað er það sem er ekki rasismi við þetta?,“ segir Kristín í samtali við Vísi. Ef við setjum hana í samhengi við ímyndir af svörtu fólki, sérstaklega tengdar Bandaríkjunum, þá er mjög erfitt að aðskilja svona styttur frá rasisma. Staðalmyndin sem hún endurspeglar er skopstæling og bandarískir fræðimenn hafa bent á að svona skopstælingar þóttu mikilvægar á tímum þegar svartir í Bandaríkjunum sóttust eftir almennum borgaralegum réttindum.“ Kristín segir lengi hafa verið tilhneigingu hér á landi til að aðskilja okkur frá sögu kynþáttafordóma. „Ef við skoðum til dæmis námsbækur frá byrjun tuttugustu aldar og lokum þeirra nítjándu má sjá að Íslendingar þekktu vel og tóku þátt í að endurskapa mjög fordómafullar ímyndir.“Kristín segir skopstælingar á þeldökku fólki í Bandaríkjunum hafa verið algengar á þeim tímum þegar það sóttist eftir almennum borgaralegum réttindum.mynd/wikipedia„Negri“ í barnakrossgátu Varðandi styttuna á Svarta kaffinu segir Kristín erlenda ferðamenn oft verða hissa vegna þess að búið sé að úthýsa ímyndum sem þessari úr þeirra almenningsrými. „Það er áhugavert með Svarta kaffið að það eru þó nokkrir Íslendingar af afrískum uppruna sem hafa beðið um að þetta sé fjarlægt. Það er auðvitað jákvætt að það hafi verið gert núna en samt merkilegt að það hafi tekið svona langan tíma.“ Kristín segir mun á því þegar haldið er í hluti sem endurspeglun til þess að hjálpa fólki að muna eftir fordómum og þegar þeir eru hafðir uppi eins og saklausar minjar með ekkert sögulegt samhengi. „Það er ýmislegt í okkar daglega rými sem mörgum virðist þykja allt í lagi. Við höfum dæmi úr námsbókum eins og umræða var um fyrir nokkrum mánuðum. Til dæmis var sonur minn að leysa krossgátu um daginn og eitt af lausnarorðunum var orðið negri, og þetta var í barnakrossgátu. Ég velti stundum fyrir mér þessum litla vilja til að taka svona hluti burt og hvort það hangi saman að Íslendingum finnist Ísland svo sérstakt að þeir geti verið með hluti sem eru særandi og hatursfullir. Hér virðist vera einhver þörf fyrir að geta sagt að þetta sé allt öðruvísi og að útlendingar skilji þetta ekki. Þetta rímar mjög vel við margt annað sem ég hef séð, eins og til dæmis umræðuna um endurútgáfu bókarinnar Tíu litlir negrastrákar. Jafnvel enn sterkar við það þegar Sigmund birti skopmynd um forsetakosningar í Bandaríkjunum þar sem Obama var stillt upp á móti Hillary Clinton. Teikningin rataði í erlenda fjölmiðla og var harðlega gagnrýnd þar. Þá var áhugavert að sjá marga Íslendinga segja: „Hvað eru útlendingar að segja okkur hvað við eigum að vera að gera?“.“
Tengdar fréttir Svara hatri með ást „Margt mis fagurt hefur verið sagt um okkur á samfélagsmiðlum og jafnvel í einkaskilaboðum.“ 9. maí 2014 09:26 Jakob, áður Sambó, hefur verið tekinn niður Svarta kaffi hefur nú tekið niður styttu af hörundsdökkum þjóni, sem lengi hefur verið einskonar einkennismerki kaffihússins. Þetta er vegna netmótmæla. 9. maí 2014 13:55 Mest lesið Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Fleiri fréttir Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Sjá meira
Svara hatri með ást „Margt mis fagurt hefur verið sagt um okkur á samfélagsmiðlum og jafnvel í einkaskilaboðum.“ 9. maí 2014 09:26
Jakob, áður Sambó, hefur verið tekinn niður Svarta kaffi hefur nú tekið niður styttu af hörundsdökkum þjóni, sem lengi hefur verið einskonar einkennismerki kaffihússins. Þetta er vegna netmótmæla. 9. maí 2014 13:55