Segjast hafa fellt 151 Talíbana við landamæri Pakistan Samúel Karl Ólason skrifar 23. desember 2014 15:36 Átökin í Kunar héraði hafa harnað síðan Bandaríkin og bandamenn þeirra dróu hermenn sína þaðan fyrir fjórum mánuðum. Vísir/AFP
Í það minnsta 151 vígamaður Talíbana hefur verið felldur af stjórnarhernum í Afganistan á síðustu tólf dögum. Mikið hefur verið barist í austurhluta landsins við landamæri Pakistan. Hershöfðinginn Abdul Habib Sayedkhaili segir að minnst hundrað vígamenn hafi særst í bardögunum. Samkvæmt Ap fréttaveitunni sagði hershöfðinginn einnig að hópur Talíbana í Pakistan hefði einnig tekið þátt í bardögunum. „Það að sautján erlendir vígamenn hafi verið felldir sannar að útlendingar standa við bakið á vígamönnum á svæðinu. Þar sem héraðið er svo nálægt landamærunum við Pakistan er auðvelt fyrir þá koma vígamönnum hér til hjálpar;“ sagði Sauedkhaili. Talið er að leiðtogar Talíbana í Afganistan haldi til í Pakistan og hafa stjórnvöld í Kabúl sakað Pakistan um um að herja ekki gegn þeim. Talíbanar neita að hafa misst svo marga menn, en gáfu þó ekki upp neinar tölur. Hermálayfirvöld í Afganistan og Pakistan hafa rætt um hvernig þeir geti barist í sameiningu við Talíbana á landamærunum og funduðu hershöfðingjar ríkjanna í höfuðborg Pakistan í dag. Pakistanar biðluðu til Afganistan um að taka saman höndum eftir að Talíbanar gerðu árás á skóla í Pakistan og myrtu rúmlega 140 manns, þar af mest börn.
Tengdar fréttir Þetta eru mennirnir sem myrtu 132 börn Myndirnar fylgdu tilkynningu sem sagði ódæðið í Peshawar réttlætanlegt þar sem her Pakistan hafi drepið konur þeirra og börn um árabil. 17. desember 2014 15:18 Segjast ætla að hreinsa svæðið af hryðjuverkum Stjórnvöld í Pakistan og Afganistan hafa samið um aðgerðir gegn Talíbönum við landamæri ríkjanna. 17. desember 2014 12:15 Drápu hátt á annað hundrað skólabarna Pakistanska talibanahreyfingin lýsti yfir ábyrgð sinni á fjöldamorðum í skóla í Peshawar. Árásin hefur verið fordæmd af þjóðarleiðtogum víða um heim. 17. desember 2014 07:15 Þriggja daga þjóðarsorg í Pakistan Íbúar í pakistönsku borginni Peshawar eru byrjaðir að grafa alla þá sem létust í árás talibana á skóla í borginni fyrr í dag. Alls létust 132 börn í árásinni og níu fullorðnir. 16. desember 2014 22:18 Harmur í Pakistan Sorg og reiði í Pakistan vegna fjöldamorðanna á þriðjudag. Talibanar segja árásina hafa verið réttlætanlega hefnd fyrir árásir pakistanska hersins undanfarin misseri. 18. desember 2014 08:00 Hafa fellt 67 vígamenn Í kjölfar árásarinnar í Peshawar, sem 132 börn dóu í, heyrðust hávær köll á hefnd og síðan þá hefur herinn gert loftárásir og sent hermenn gegn Talíbönum við landamæri Afganistan. 19. desember 2014 08:20 Mest lesið Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Erlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Innlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Efast viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Innlent Netanjahú leysir stríðsráðið upp Erlent Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Innlent Fleiri fréttir Netanjahú leysir stríðsráðið upp Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Netanyahu vill ekki gera hlé á hernaði Hyggjast gera dagleg hlé á árásum til að auka við neyðaraðstoð Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Sjá meira
Þetta eru mennirnir sem myrtu 132 börn Myndirnar fylgdu tilkynningu sem sagði ódæðið í Peshawar réttlætanlegt þar sem her Pakistan hafi drepið konur þeirra og börn um árabil. 17. desember 2014 15:18
Segjast ætla að hreinsa svæðið af hryðjuverkum Stjórnvöld í Pakistan og Afganistan hafa samið um aðgerðir gegn Talíbönum við landamæri ríkjanna. 17. desember 2014 12:15
Drápu hátt á annað hundrað skólabarna Pakistanska talibanahreyfingin lýsti yfir ábyrgð sinni á fjöldamorðum í skóla í Peshawar. Árásin hefur verið fordæmd af þjóðarleiðtogum víða um heim. 17. desember 2014 07:15
Þriggja daga þjóðarsorg í Pakistan Íbúar í pakistönsku borginni Peshawar eru byrjaðir að grafa alla þá sem létust í árás talibana á skóla í borginni fyrr í dag. Alls létust 132 börn í árásinni og níu fullorðnir. 16. desember 2014 22:18
Harmur í Pakistan Sorg og reiði í Pakistan vegna fjöldamorðanna á þriðjudag. Talibanar segja árásina hafa verið réttlætanlega hefnd fyrir árásir pakistanska hersins undanfarin misseri. 18. desember 2014 08:00
Hafa fellt 67 vígamenn Í kjölfar árásarinnar í Peshawar, sem 132 börn dóu í, heyrðust hávær köll á hefnd og síðan þá hefur herinn gert loftárásir og sent hermenn gegn Talíbönum við landamæri Afganistan. 19. desember 2014 08:20