Gjaldkeri starfsmannafélags viðurkennir fjárdrátt Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. apríl 2014 16:06 Vísir/Valli/Pjetur
Lögreglan á Eskifirði hefur nú til rannsóknar fjárdrátt gjaldkera starfsmannafélagsins Sóma hjá Alcoa-fjarðaráli á Reyðarfirði. Gjaldkerinn hefur gengist við broti sínu að því er kemur fram í tölvupósti til starfsmanna fyrirtækisins. Fjárdrátturinn sem til rannsóknar er hjá lögreglu nemur átta milljónum króna. RÚV greindi fyrst frá málinu síðdegis. Umræddur gjaldkeri tók við stöðu gjaldkera á aðalfundi félagsins þann 16. maí 2013. Eigið fé Sóma í árslok 2012 var rúmar sextán milljónir króna. Fjárdrátturinn hófst strax í næsta mánuði og stóð yfir þar til í mars síðastliðnum. Við gerð ársreiknings starfsmannafélagsins kom í ljós að ýmislegt var ábótavant. Vaknaði í kjölfarið grunur um fjárdrátt. „Grunurinn hefur nú verið staðfestur af endurskoðanda og viðkomandi einstaklingur hefur viðurkennt fjárdrátt,“ segir í tölvupósti sem Bjarni Þór Haraldsson, formaður Sóma, sendi starfsmönnum í gær og Vísir hefur undir höndum. Starfsmannafélagið stefnir að því að fá fjárdráttinn endurgreiddan að fullu. Verið er að vinna að því að lágmarka fjárhagstjón Sóma og hafa einhverjir lausafjármunir þegar verið endurgreiddir. Dagmar Ýr Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Alcoa-fjarðaráls á Reyðarfirði, sagði í samtali við Vísi að búið væri að ganga frá starfslokum við umræddan gjaldkera. Aðalfundur starfsmannafélagsins fari fram í vor og þá taki nýr gjaldkerfi við störfum. Starfshættir verði við sama tilefni endurskoðaðir.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Sjá meira