Jól

Unnur Birna: Hugsar til ömmu á jólunum

„Stefnan er að baka eina til tvær sortir af smákökum, búa til piparkökuhús með fólkinu mínu og skreyta heimilið með seríum," segir Unnur Birna.
„Stefnan er að baka eina til tvær sortir af smákökum, búa til piparkökuhús með fólkinu mínu og skreyta heimilið með seríum," segir Unnur Birna.

„Jólin þegar amma heitin, Jórunn, var hjá okkur og kenndi öllum við borðhaldið að skála rétt og almennilega," svarar Unnur Birna Vilhjálmsdóttir aðspurð um eftirminnileg jól.

„En að hennar mati gerðum við hin þetta ekki alveg nógu „vel"," segir hún brosandi og heldur áfram:

„Við höfum skálað henni til heiðurs á hverju aðfangadagskvöldi síðan."

„Falleg jólatónlist og góður félagsskapur," svaraði Unnur Birna þegar hún var spurð hvað kemur henni í hátíðarskap.

Hvernig undirbýrð þú jólin? „Ég er svona að móta mínar eigin jólahefðir og stefnan er að baka eina til tvær sortir af smákökum, búa til piparkökuhús með fólkinu mínu og skreyta heimilið með seríum, kertum og greni, ásamt því að setja upp lifandi jólatré."

Unnur Birna og Tindur.

Hefðbundið aðfangadagskvöld

„Aðfangadagskvöldið í ár verður hefðbundið. Svínasteik með puru og með því hjá mömmu þar sem síðan verða opnaðar jólagjafir. Það verður sérstaklega skemmtilegt að fylgjast með Helgu Sóley litlu systur, (2 ára), taka þátt í þeim gjörning. Síðbúin kvöldganga, ef veður leyfir, er svo ómissandi."

Hvað kemur þér í jólagírinn? „Falleg jólatónlist og góður félagsskapur. Ég ætla einmitt á Frostrósir í ár, eins og hálf þjóðin, um leið og ég er búin í lokaprófum í háskólanum," segir Unnur Birna.

„En það að heyra kirkjuklukkurnar hringja inn jólin klukkan sex á aðfangadagskvöld kemur mér í mesta hátíðarskapið."-elly@365.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×