Fataskápurinn: Anna Sóley Viðarsdóttir 15. desember 2014 16:00 Anna Sóley viðarsdóttir „
Fatastíllinn minn er breytilegur og kemur í tímabilum. Ég klæði mig meira eftir því hvernig mér líður heldur en hvernig veðrið er úti, sem getur verið stórfenglegt vandamál. Ég verð að viðurkenna að búseta mín í Danmörku hefur tónað mig heilmikið niður, meira dökkt og minna tilraunakennt. Einhvers konar emo-indíánaprinsessa kannski. Ég hef alltaf verið mikið búningafrík, en oftast er ég með eitthvað ákveðið í huga þegar ég klæði mig, hvort sem það er tímabil, manneskja eða árstíð þá er alltaf eitthvað ákveðið sem verður búningurinn minn þann daginn.“Rick Owens skór – Hmmm, skemmtileg og falleg saga á bak við þessa snilld. Hún fær hins vegar að liggja á milli hluta að þessu sinni. Þeir eru náttúrulega bara trylltir og ég fékk þá að gjöf.Duffle bag – Jólagjöf frá samstarfskonu minni, henni Evu. Mér finnst hún mjög falleg og mér þykir vænt um hana. Ég nota hana ótrúlega mikið, hvort sem ég er að fara í burtu yfir helgi eða bara í jóga. Ég lánaði hana um daginn og ég saknaði hennar allan tímann sem ég sá hana ekki í herberginu mínu. Hún gerir mig bara glaða. Kögurkjóll – Hann er keyptur í Aftur og er úr smiðju Raquel Allegra. Mér finnst hann nothæfur við mörg tækifæri, hvort sem ég er að klæða mig upp á fyrir eitthvert tilefni eða hversdags með grófri peysu og grófum skóm. Fyrir utan það að ég elska kögur, það er aldrei of mikið af því.Aftur vesti – Fullkomin flík þegar byrjar að kólna í Køben, þá getur maður framlengt alla jakka inn í veturinn. Ég reyni að vera alltaf í því þegar ég ferðast því þetta er náttúrulega besta og smartasta flugvélateppið. Reyndar er það mjög svo ófullkomin hjólaflík, það hef ég lært af biturri reynslu en hvað með það! Þá labba ég bara!Grá kasmírullarpeysa – Það er ekkert flókið en ég bara elska hana, gerði áður en hún varð mín og mun alltaf gera eftir að ég fékk hana. Hún er líka úr Aftur. Get ekki hugsað mér neitt annað en að vefja henni utan um mig þegar mér er kalt, ég sver það hún framleiðir hita.
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Sjá meira