Gjöf sem breytir öllu Bjarni Gíslason skrifar 11. desember 2014 07:00 Farsæld er meginmarkmið með öllu starfi Hjálparstarfs kirkjunnar bæði á Íslandi og í verkefnum erlendis. Mannréttindi og virkni, þátttaka og valdefling eru ráðandi hugtök í starfinu. Við erum upptekin af styrk, hæfileika og getu einstaklinga og samfélaga, til betra lífs. Þegar einstaklingur kemur til okkar segjum við ekki „hvað getum við gert fyrir þig?“ heldur „hvaða væntingar hefur þú, hverjir eru möguleikar þínir á að bæta stöðu þína, á hvaða sviði ert þú sterk/ur?“ Á þessum grunni vinnum við með einstaklingnum að bættri stöðu.Bætti heilsu og menntun Sama á við um einstaklinga og samfélög í verkefnalöndum okkar. Í Eþíópíu var byrjað á samtali við fólkið, haldnir voru fundir í þorpum þar sem allir eru velkomnir og sérstaklega hugað að því að láta vita að konur eru velkomnar. Rætt var um stöðu samfélagsins hvar helstu möguleikar til betra lífs og sterkara samfélags liggi. Fólkið sjálft greindi og ákvað hvað væri brýnast og forgangsraðaði, skilgreindi styrkleika sína, hvað það gat séð um sjálft og hvar helst þyrfti utanaðkomandi stuðning. Í samstarfi við þorpsleiðtoga og staðaryfirvöld var síðan verkáætlun og skipulag verkefnisins ákveðin. Betri aðgangur að vatni, bætt fæðuöryggi, bætt heilsa og menntunarmöguleikar voru forgangsmál sem sett voru á oddinn í verkefni Hjálparstarfsins í Jijiga-héraði í Austur-Eþíópíu. Fólkið sjálft leggur mikið á sig, grefur fyrir vatnsþróm og brunnum en stuðningurinn felst í að útvega sérfræðiþekkingu, verkfæri, sement og verktaka sem fóðra brunna og vatnsþrær svo þær endist árum saman. Verkefnið hefur verið í gangi síðan 2007 og mörg þúsund manns hafa notið góðs af. Með hreinu vatni breytist allt! En íbúar Jijiga-héraðs eru um 320.000 á stóru, hrjóstrugu svæði og enn búa margir við mikinn vatnsskort. Við getum með þeim unnið að bættri stöðu og farsælu lífi. Vilt þú vera með okkur í þessu verki? Getur þú bætt við einni jólagjöf? Þú getur greitt valgreiðslu í heimabanka eða lagt inn á söfnunarreikning: 334-26-50886 kt. 450670-0499. Gjöf sem gefur vatn er gjöf sem breytir öllu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 08.08.26 Halldór The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyramegin Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar Sjá meira
Farsæld er meginmarkmið með öllu starfi Hjálparstarfs kirkjunnar bæði á Íslandi og í verkefnum erlendis. Mannréttindi og virkni, þátttaka og valdefling eru ráðandi hugtök í starfinu. Við erum upptekin af styrk, hæfileika og getu einstaklinga og samfélaga, til betra lífs. Þegar einstaklingur kemur til okkar segjum við ekki „hvað getum við gert fyrir þig?“ heldur „hvaða væntingar hefur þú, hverjir eru möguleikar þínir á að bæta stöðu þína, á hvaða sviði ert þú sterk/ur?“ Á þessum grunni vinnum við með einstaklingnum að bættri stöðu.Bætti heilsu og menntun Sama á við um einstaklinga og samfélög í verkefnalöndum okkar. Í Eþíópíu var byrjað á samtali við fólkið, haldnir voru fundir í þorpum þar sem allir eru velkomnir og sérstaklega hugað að því að láta vita að konur eru velkomnar. Rætt var um stöðu samfélagsins hvar helstu möguleikar til betra lífs og sterkara samfélags liggi. Fólkið sjálft greindi og ákvað hvað væri brýnast og forgangsraðaði, skilgreindi styrkleika sína, hvað það gat séð um sjálft og hvar helst þyrfti utanaðkomandi stuðning. Í samstarfi við þorpsleiðtoga og staðaryfirvöld var síðan verkáætlun og skipulag verkefnisins ákveðin. Betri aðgangur að vatni, bætt fæðuöryggi, bætt heilsa og menntunarmöguleikar voru forgangsmál sem sett voru á oddinn í verkefni Hjálparstarfsins í Jijiga-héraði í Austur-Eþíópíu. Fólkið sjálft leggur mikið á sig, grefur fyrir vatnsþróm og brunnum en stuðningurinn felst í að útvega sérfræðiþekkingu, verkfæri, sement og verktaka sem fóðra brunna og vatnsþrær svo þær endist árum saman. Verkefnið hefur verið í gangi síðan 2007 og mörg þúsund manns hafa notið góðs af. Með hreinu vatni breytist allt! En íbúar Jijiga-héraðs eru um 320.000 á stóru, hrjóstrugu svæði og enn búa margir við mikinn vatnsskort. Við getum með þeim unnið að bættri stöðu og farsælu lífi. Vilt þú vera með okkur í þessu verki? Getur þú bætt við einni jólagjöf? Þú getur greitt valgreiðslu í heimabanka eða lagt inn á söfnunarreikning: 334-26-50886 kt. 450670-0499. Gjöf sem gefur vatn er gjöf sem breytir öllu.
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar
Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar