Læknar þurfa að vera sýnilegri á netinu Lilja Björk Hauksdóttir skrifar 9. desember 2014 12:00 Davíð segir þá lækna sem vilja tileinka sér notkun samfélagsmiðla í starfi eiga að fylgjast með á Læknadögum í janúar. vísir/GVA
Davíð Björn Þórisson, sérfræðingur í bráðalækningum á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi, telur lækna geta nýtt sér samfélagsmiðla betur í starfi. „Það er í gangi bylting á netinu þar sem upplýsingar verða aðgengilegri og auðveldara að koma þeim í alla króka og kima samfélagsins,“ segir Davíð. „Þetta hefur bæði kosti og galla í för með sér. Gallarnir sem snúa að læknum eru aðallega þeir að sjúklingar eru að fá rangar upplýsingar. Það er auðvelt að sitja heima og og gúgla og finna svar við hvaða spurningu sem er. Ef læknar ætla að passa upp á að sjúklingar fái réttar upplýsingar verða þeir að taka völdin í þessari upplýsingaöflun og vera með í samfélagsmiðlabyltingunni sem er í gangi. Þeir verða að vera sýnilegir á netinu og þátttakendur í umræðunni.“ Davíð telur íslenska lækna ekki vera nógu duglega í einmitt þessu en að það sé fyrst og fremst vegna þess að þeir þurfi að læra að treysta félagsmiðlunum og hvernig hægt sé að nota þá. „Læknar eru upptekin stétt, þeir hafa lítinn tíma fyrir nýjungar og eru almennt þekktir fyrir að vera seinir til að tileinka sér þær,“ segir hann og brosir. „Kosti þess að læknar séu virkir á samfélagsmiðlum er ágætt að sýna fram á með dæmi. Tökum dæmi um sjúkling með lupus sem er tiltölulega algengur sjúkdómur og flókinn. Sjúkdómurinn hefur heilmikið með lífsstílsbreytingar að gera alveg eins og lyfjameðferðir. Sjúklingarnir reyna mikið að taka þátt í meðferðinni, til dæmis með lífsstílsbreytingum. Þeir hafa í dag enga aðra leið en að fara á netið og þá er það oft slembilukka sem ræður því hvort þeir fá réttar upplýsingar eða ekki. Þarna gætu læknar verið virkir í umræðunni á netinu, hvort sem þeir væru með blogg, tækju þátt í umræðu í lokuðum hópum á Facebook eða jafnvel á Twitter, til þess að deila út upplýsingum sem þessir sjúklingar eru að leita að. Þannig fá sjúklingar réttar upplýsingar frá sínum lækni í stað þess að finna jafnvel eitthvert kukl á netinu.“Betur undirbúnir sjúklingar Eins og margoft hefur komið fram er staðan í heilbrigðiskerfinu hér á landi erfið. Læknar eru sérstaklega uppteknir og í mörgum tilfellum er erfitt fyrir sjúklinga að fá tíma hjá sérfræðingum. „Aðgengi að til dæmis gigtarlæknum er slæmt í dag og getur tekið marga mánuði að fá tíma. Þegar sjúklingurinn í dæminu hér að ofan fær loksins tíma hjá gigtarlækninum sínum vill hann ekki þurfa að eyða tímanum í að spyrja út í almenn atriði sem hægt er að lesa sér til um á netinu heima áður en hann kemur. Ef samfélagsmiðlarnir væru nýttir gæti þessi sjúklingur verið búinn að lesa upplýsingar frá lækninum og ráðfæra sig við aðra lupus-sjúklinga í gegnum rás sem læknirinn stýrir áður en hann mætir til læknisins. Sjúklingurinn mætir þá miklu upplýstari í tímann og þá er hægt að fara beint í mikilvæga þætti sem aðeins læknirinn getur gert. Þannig fæst meiri gæðatími í viðtalið,“ segir Davíð.Erfitt að sía út upplýsingar Annar handleggur á notkun samfélagsmiðla hjá læknum er sú símenntun sem þeir geta fengið í gegnum þá. „Á samfélagsmiðlunum eru gríðarlega mörg tækifæri fyrir lækna til að sækja ráðstefnur úti í heimi sitjandi heima í stofu. Einnig er til mikið af bloggum og skrifum frá læknum, það er fullt af gullmolum þarna úti sem auðvelt er að ná í. Á hinn bóginn er upplýsingaflæðið svo mikið að læknar hafa ekki tíma til að sía út það sem máli skiptir fyrir þá. Það sem ég hef helst verið að tala fyrir er að nota tengslanetið á samfélagsmiðlunum til að sía út. Þar er auðvelt að tengjast gigtarlæknum, svo haldið sé áfram með dæmið, sem eru að kljást við lupus. Það er hægt að tengjast þeim og fylgjast með því sem þeir eru að skoða og gera. Þannig geta læknar hjálpað hverjir öðrum,“ útskýrir Davíð. Læknanemar eru byrjaðir að kalla eftir því að fá meira af þessum heimi inn í nám sitt að sögn Davíðs. „Það er byrjað á því víða úti í heima að tvinna saman hefðbundið nám og það sem samfélagsmiðlarnir veita okkur, til dæmis allar þessar upptökur. Á bráðamóttökunni hvet ég ungu læknana hjá mér til að læra hlutina heima, horfa til dæmis á hvernig inngripin eru gerð og læra svo á bráðamóttökunni það sem þarf að læra á gólfinu. Þá þarf ég ekki að þylja upp fræðin áður en við byrjum á því sem læknarnir þurfa að læra með eigin höndum.“Björguðu sérnáminu Davíð hefur lengi notað samfélagsmiðla sér í hag, bæði í námi og starfi. „Ég vil meina að þeir hafi bjargað mínu sérnámi. Þar sem ég var í námi í Svíþjóð vantaði sérfræðinga til að handleiða. Það var allt keyrt á gamaldags kennslu og það var ekki nóg til að fylgjast með í okkar fagi, bráðalækningum, sem þróast mjög hratt. Samfélagsmiðlarnir nýttust sérstaklega vel því þannig tengdumst við bráðalæknum úti í heimi, bæði unglæknum og sérfræðingum sem voru undir betri handleiðslu en við og þeir færðu okkur gullmolana heim í stofu. Þetta hvatti okkur áfram og kveikti áhugann á ný.“ Þeir læknar sem vilja tileinka sér notkun samfélagsmiðla í starfi segir Davíð að ættu að fylgjast með umræðu á Læknadögum sem fara fram í janúar. Á vegum Læknafélagsins verða vinnubúðir þar sem læknum verður boðið að koma og læra að tileinka sér félagsmiðlana.
Mest lesið Sannfærð um að hún myndi aldrei geta átt gott líf Lífið Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Lífið Forsetahjónin létu sig ekki vanta Lífið Fréttatía vikunnar: Þýskaland, hetja og kaffihús Lífið Mafia: The Old Country - Fínasta afþreying, þó þunn sé Leikjavísir Bieber fékk sér smók í Skagafirði Lífið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Lífið Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Lífið Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ Lífið Fleiri fréttir Sannfærð um að hún myndi aldrei geta átt gott líf Fréttatía vikunnar: Þýskaland, hetja og kaffihús Forsetahjónin létu sig ekki vanta Uppskrift að hinu fullkomna vinkonukvöldi Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Þorsteinn og Rós orðin hjón Fagna aldarfjórðungsafmæli Ylstrandarinnar á morgun Björn Bragi, Jón Jónsson og Anna Svava í handritsteymi Áramótaskaupsins Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Ársgömul færsla á Reddit kveikjan að samstarfinu Bieber fékk sér smók í Skagafirði Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Cruise afþakkaði boð Trump Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ „Það var aldrei uppgjöf í hans huga, alltaf jákvæðni“ Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Heillandi arkitektúr í Garðabæ Valdi hættur að spila í neðri deildunum Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Hall og Oates ná sáttum Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Ragnheiður og Benedikt eiga von á jóladreng Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Sjá meira