Bókstafstrúarmennirnir fá því miður mestu athyglina Þórður Ingi Jónsson skrifar 9. desember 2014 08:30 Benjamín með tveimur bekkjarbræðrum sínum. Annar er frá Ísrael en hinn frá Palestínu. „
Sabbatinn er hafinn þannig að allt stöðvast hér í bili. Nú er ég að vinna smá þar til teitið hefst svo í kvöld,“ segir Benjamín Þór Waldmann, sem er staddur í bænum Lod fyrir utan Tel Avív í Ísrael. Benjamín lærir nú til mastersprófs í deilustjórnun og málamiðlun við háskólann í Tel Avív. Þá vinnur hann við að stuðla að friðsamlegri sambúð á milli araba og gyðinga í Lod. „Samhliða náminu starfa ég með samtökunum Ayalim, sem hafa það að markmiði að byggja upp framtíð Ísraels – að vinna með íbúum fátækra bæja og stuðla að fræðslu, endurbótum, friðsamlegri sambúð araba og gyðinga og svo framvegis.“ Benjamín býr á háskólasvæði með 120 nemendum sem flestir eru Ísraelar. „Sumir eru að gera þetta sem hluta af herþjónustu sinni á meðan aðrir eru að hjálpa við að byggja upp bæinn með beinni þátttöku og koma honum í betra horf. Það er mikil saga hér en bærinn hefur svolítið lent í þeirri aðstöðu að vera skilinn útundan,“ segir Benjamín en mikil fátækt ríkir í bænum. „Hann hefur fengið á sig óorð fyrir eiturlyfjaneyslu í gegnum árin og hér eru ekki margir möguleikar fyrir íbúana.“ Lod er afar blandaður bær. „Það er mjög stórt arabasamfélag hér ásamt mismunandi týpum af gyðingum; rétttrúnaðargyðingum, íhaldssömum gyðingum, umbótasinnum og fleirum. Þá er einnig mikið af eþíópískum innflytjendum svo að þetta er algjör suðupottur hvað íbúana varðar. Bærinn á hins vegar ansi langt í land. Grunngerðir samfélagsins eru ekki til staðar,“ segir hann og bætir við að mikilvægt sé að endurnýja bæinn til þess að íbúar hans geti verið stoltir yfir heimabæ sínum. Benjamín er mikill miðjumaður þegar kemur að deilumálum Ísraels og Palestínu en þess má geta að afi hans, Peter Waldmann, var gyðingur sem flúði frá Vín til Bretlands undan nasistunum. „Margir segja fjölmiðlana vera hlutdræga í garð Palestínumanna en það nákvæmlega sama gildir um Ísraelana auðvitað. Augljóslega er mikið fjallað um átökin milli Ísraela og Palestínumanna, með réttu, því það er mjög stórt mál en það eru margir aðrir hlutir sem eru gríðarlega mikilvægir og hafa mikil áhrif á svæðið. Til dæmis eru það málefni arabískra Ísraela, sem eru fastir á milli þess að hafa tengingu við Palestínumenn og að vera hluti af ísraelsku þjóðinni.“ Benjamín segir bókstafstrúarmenn á báðum hliðum fá mesta athyglina og að það sé miður. „Báðar hliðar þurfa virkilega að leggja sig fram við að skilja sjónarmið hinna. Það er ekki auðvelt eftir átökin í sumar, fólki finnst það ekki vera öruggt. Sama hversu margir deyja þá spyr fólk sig enn: „Hvernig getum við haft frið þegar við erum ekki örugg, hvernig getum við ekki verið á verði, hvernig getum við leyft öllum að ferðast eins og þeir vilja og búist við því að ekkert gerist?“ Málið er aftur á móti það, að þú þarft að hafa fleiri viðræður og bera meira traust til hinnar hliðarinnar. Án þess verður enginn friður og hlutirnir versna. Þú getur ekki fengið fram öryggi á þennan hátt því Palestínumennirnir og hinir minnihlutahóparnir eiga líka heima hér.“Stiklað á stóru um smábæinn Lod (Lydda)Lod er lítill bær 15 kílómetra fyrir utan Tel Avív. Íbúafjöldi er í kringum 70.000 en bærinn er mjög blandaður aröbum og gyðingum. Þar til árið 1948 var Lod (Lydda) arababær þar sem bjuggu í kringum 20.000 múslimar og 1.500 kristnir menn. Árið 1947 ákváðu Sameinuðu þjóðirnar að skipta Palestínu í tvö ríki; eitt fyrir gyðinga og eitt fyrir araba. Nokkur arabísk ríki gerðu árásir á hið nýstofnaða ríki og í stríðinu 1948 sigruðu Ísraelsmenn arabíska bæi fyrir utan svæðið sem SÞ hafði úthlutað þeim, meðal annars bæinn Lod. Sama árið fjölgaði íbúum í bænum þar sem arabískir flóttamenn frá öðrum svæðum höfðu flutt sig þangað. Brátt voru um 1.000 arabar gerðir útlægir úr bænum af Ísraelsmönnum en alls voru um 70.000 arabar gerðir útlægir frá heimabæjum sínum við stofnun Ísraelsríkis árið 1948.Eftir útlegðina fluttu fjölmargir gyðingar í bæinn en samkvæmt tímaritinu The Economist var þriggja metra hár veggur reistur í bænum árið 2010 til að aðskilja hverfi gyðinga og araba auk þess sem hömlur voru settar á byggingastarfsemi araba, á meðan hvatt var til byggingastarfsemi í hverfum gyðinga.
Mest lesið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum Tíska og hönnun Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Lífið Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Lífið Einkaréttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur athygli Leikjavísir Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Fleiri fréttir Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Sjá meira