Fóru saman í skapandi útilegu á seglskútu 5. desember 2014 12:00 Djúpar pælingar Þeir félagar Áki og Halldór sýna afrakstur ferðarinnar á sýningunni í kvöld. Fréttablaðið/GVA „
Þetta ferðalag átti að vera hópferð í tilefni af tónsmíðaviku hjá listahópnum S.L.Á.T.U.R, sem farin er reglulega, en í þetta sinn var einstaklega léleg mæting svo við enduðum bara tveir,“ segir Áki Ásgeirsson raftónlistarmaður. Hann ásamt félaga sínum Halldóri Úlfarssyni listamanni og hönnuði flytja vídeóverk og tónlistatriði sem tengjast ferð þeirra á seglskútu um Breiðafjörð sumarið 2012. „Það er frekar mikil skuldbinding fyrir upptekna listamenn að fara í svona útilegu á sjó í heila viku,“ segir Áki. Markmið ferðarinnar var að loka sig af, búa til tónlist og taka upp. „Að vera úti í náttúrunni er mjög gott umhverfi fyrir listsköpun. Þetta var rosalega gaman og vakti upp margar pælingar um sjálfbærni og hversu háð við erum menningunni og mannfólkinu,“ segir hann, en í vídeóverkinu vinna þeir með pælingar sem urðu til í ferðinni. „Þegar þú ert á bát þá ertu mjög einangraður. Engin þjónusta eða samskipti við ytri heiminn og maður er þarf að huga vel að vistum. Þá losnar þú við þessa samblöndun sem maður verður fyrir i borginni. Hins vegar kemstu líka að því að rómantísk náttúruupplifun er kanski ekkert frábær til lengdar. Þegar maður er umvafinn náttúrunni hættir maður að skynja fegurð hennar og verður samdauna umhverfinu, eins og í borginni.“ segir Áki. Tónlistin sem spiluð er í myndinni er samin af Áka, en Halldór sá um myndbandið og vinnslu þess. Sýningin er í Mengi á Óðinsgötu og hefst hún klukkan 21. -asi
Mest lesið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Ólétt 52 ára Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Fleiri fréttir Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Sjá meira