Halda óvenjulegt jólaball neðansjávar Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 5. desember 2014 09:00 Þór Ásgeirsson segir að það sé alltaf jafn gaman á ballinu. Vísir/Vilhelm
Sportkafarafélag Íslands stendur fyrir óvenjulegu jólaballi fyrir félagsmenn í Silfru 20. desember. Jólaballið, sem er árlegur viðburður, er að mörgu leyti með hefðbundnu sniði en þykir óvenjulegt fyrir þær sakir að það er haldið neðansjávar. „Við höldum í rauninni svona hefðbundið jólaball nema ofan í vatni,“ segir Þór Ásgeirsson, formaður Sportkafarafélags Íslands. „Við sökkvum jólatré með ljósum og hátölurum ofan í gjána.“ Jólatréð er skreytt seríu og jólaskrauti. „Svo er kveikt á trénu og tónlistinni og kafararnir koma og leika sér í takt við tónlistina,“ segir Þór en jólaballið er fjölmennasta köfunin á vegum félagsins. „Þetta er svolítið sérstakt, ég veit ekki til þess að þetta sé gert annars staðar í heiminum. Jólasveinninn kemur á svæðið og svona.“ Að sögn Þórs eru Helga Möller, Svanhildur Jakobsdóttir og Ólafur Gaukur vinsæl á ballinu. „Það heyrist mjög vel í tónlistinni. Sumir takast í hendur og reyna að dansa eða synda í kringum jólatréð,“ segir Þór og bætir við að það megi því segja að dansað sé í kringum jólatréð á þessu óvenjulega jólaballi. Þór segir að alltaf sé jafn gaman á ballinu. „Þarna hittast gamlir og nýir félagar, við vonum bara að veðrið verði gott, þá er hægt að fá sér smákökur og kakó á bakkanum.“
Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 Lífið Fleiri fréttir Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Sjá meira