Hannar nýja línu fyrir Club Monaco 8. nóvember 2014 12:00 Magnea segir það ótrúlega gaman að fá svona tækifæri og vonar að það opni fleiri möguleika fyrir hana í framtíðinni. Vísir/Þórdís Reynis
Fatahönnuðurinn Magnea Einarsdóttir mun hanna línu í nafni fatamerkisins Magnea fyrir bandaríska fatamerkið Club Monaco, undirmerki Ralph Lauren. Yfirhönnuður prjónadeildar merkisins kom til landsins fyrr á árinu í vinnuferð og setti sig í samband við Magneu áður en hún kom. „Hún fann okkur á netinu og setti sig í samband við mig. Hún hafði heillast af okkar stíl og áherslum merkisins, bæði notkun okkar á íslensku ullinni og prjóni almennt og úr varð að okkur var boðið að hanna hliðarlínu fyrir Club Monaco undir okkar merki. Við vorum beðin að hanna línu og svo yrðu nokkrar flíkur valdar úr til framleiðslu,“ segir Magnea en línan mun heita Magnea X Club Monaco og verður seld í verslunum þeirra um allan heim. Í kjölfarið fór hún út og kynnti línuna í höfuðstöðvum fyrirtækisins. Þeim leist svo vel á að úr varð að allir stílar voru valdir. Magnea mun fara aftur út í desember til að skoða fyrstu frumgerðir og fylgjast með mátun. „Það mun svo vera áframhaldandi samstarf milli fyrirtækjanna þar til línan kemur út. Þetta er búið að vera mjög lærdómslíkt ferli. Club Monaco er stórt fyrirtæki og það má segja að ég hafi tekið sprett í gegnum það á meðan ég var þar. Fyrir mig er líka mjög áhugavert að fá að kynnast Bandaríkjamarkaði þar sem ég lærði í London og bý og rek fyrirtæki á Íslandi,“ segir hún. „Það er virðingarvert að svona stórt fyrirtæki velji að vinna í samstarfi við okkur þar sem þau hefðu auðveldlega getað valið að stela einfaldlega okkar hönnun eins og tíðkast því miður í hönnunarbransanum. Einnig er þetta frábært tækifæri fyrir okkar fyrirtæki og gaman að finna fyrir því að Magnea sé að vekja athygli út fyrir landsteinana.“
Mest lesið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fleiri fréttir „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Sjá meira