Vaxin upp úr krúttinu Þórður Ingi Jónsson skrifar 21. október 2014 00:01 Rökkurró gaf út plötu seinast árið 2010. MYND/HÉÐINN EIRÍKSSON „
Við erum engin krútt lengur,“ segir Hildur Kristín Stefánsdóttir, söngkona hljómsveitarinnar Rökkurró en þau gefa út plötuna Innra í byrjun næstu viku, nýja plötu með nýja stefnu. „Það eru svo langt síðan við gáfum seinustu plötuna út, fjögur ár, og við áttuðum okkur eiginlega á því að okkur langaði ekki að gera sömu tónlistina. Það er meiri elektroník í nýja dótinu og ekkert krútt eins og hefur verið áður. Við erum vaxin upp úr krúttinu,“ segir Hildur létt í bragði. Hljómsveitin efnir til forhlustunarteitis á Kex Hostel í kvöld þar sem allir eru velkomnir. Þar verður hægt að hlusta á nýju plötuna og sjá nýja tónlistarmyndband þeirra við lagið Blue Skies. Myndbandið er svokallað „one take“ myndband þar sem öll atburðarrásin gerist í einni töku og ekkert er klippt. „Við fengum til liðs við okkar Sigurjón Bjarna, sem er að læra sviðssetningu í LHÍ en hann leikstýrði myndbandinu og sá um hugmyndavinnu. Við þurftum að æfa þetta rosa mikið því það má ekkert klúðrast,“ segir Hildur sem segist hafa barist við að halda andliti í tökunum. „Þetta gekk ógeðslega vel og við enduðum á því að nota bara fyrstu tökuna. Hún var alveg málið.“
Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Fleiri fréttir Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Sjá meira