Áhrifamikið að sjá gröf Konfúsíusar Þórður Ingi Jónsson skrifar 21. október 2014 10:00 Kristján hefur verið mikil driffjöður í félaginu. fréttablaðið/gva „
Ég varð mjög glaður þegar þetta bar að en ég átti reyndar ekki von á því að fá þessa hyllingu á fundinum,“ segir Kristján H. Jónsson, varaformaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri Kínversk-íslenska menningarfélagsins, en hann var hylltur á dögunum fyrir 40 ára óeigingjarnt starf í þágu félagsins. „Við höfum verið í þessu saman Arnþór Helgason, núverandi formaður, og ég – ekki má gleyma hans hlut. Ég er bara glaður að hafa getað látið gott af mér leiða.“ Að sögn Kristjáns var það röð tilviljana sem varð til þess að áhugi hans kviknaði á Kína og menningarstarfsemi tengdri landinu. „Ég var á fertugsaldri þegar ég starfaði á Hótel Loftleiðum í gamla daga. Þá bjó þar kínverski sendiherrann í marga mánuði ásamt hans aðstoðarmönnum sem ég kynntist svolítið. Cargolux-flugfélagið flaug nokkrum sinnum til Kína, það er að segja til Hong Kong, og flugmennirnir voru kunningjar mínir. Ég fór í eina ferð en á þessum tíma var þetta gríðarlega lokað land þó að menningarbyltingin hafi aðeins verið að hjaðna. Ég náði mér í vegabréfsáritun hjá sendiherranum og fór í vikuferð inn til Canton, sem heitir nú Guangzhou, og þá smitaðist ég af áhuganum fyrir alvöru,“ segir Kristján. Síðan þá hefur hann farið margar ferðir til Kína og ferðast vítt og breitt um landið, meðal annars sem fararstjóri. Síðasta ferðin var í maí en þá voru Kristján og Arnþór í fimm manna nefnd sem boðið var að taka þátt í afmælishátíðarhöldum fyrir Vináttustofnun Kína við erlend ríki. „Þetta var mjög eftirminnileg ferð. Við fórum út á land og komumst alla leið að gröf Konfúsíusar, sem var mjög áhrifamikið.“ Að sögn Arnþórs, núverandi formanns félagsins, hefur Kristján verið ómissandi stoð og stytta fyrir félagið. „Kristján hefur verið mikil driffjöður í félaginu, hann hefur haft mjög góð sambönd og gat oft liðkað til um ýmislegt þegar hingað komu listamannahópar.“ Til dæmis kom hingað til lands 80 manna listfimleikahópur frá Tianjin árið 1975 og voru á milli þrettán og sextán þúsund manns viðstaddir sýningu hópsins, en að sögn Arnþórs sá Kristján alfarið um það mál.
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira