Saga um baráttu fyrir bættum kjörum Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar 16. október 2014 12:00 Leikstjórinn Saga Jónsdóttir skrifaði verkið ásamt Stefaníu E. Hallbjörnsdóttur og leikstýrir því einnig. Vísir/Aui
Leikfélag Hörgdæla frumsýnir í kvöld Verksmiðjukrónikuna, nýtt íslenskt leikrit eftir Sögu Jónsdóttur og Stefaníu Elísabetu Hallbjörnsdóttur. Í leikritinu segir frá lífi og starfi verkafólks í verksmiðjunni Gefjun á Akureyri á árunum 1940-1942. Bretarnir komu til Akureyrar, sem hafði ýmsar breytingar í för með sér og mikið var um að vera í bænum. Ungu stúlkurnar heilluðust og nýir tímar runnu upp. „Þarna unnu um þúsund manns á sínum tíma og í verkinu fáum við að kynnast margs konar persónum sem starfa í verksmiðjunum. Það er verkfall í bígerð hjá þeim og því ýmislegt sem gengur á,“ segir Saga, en ásamt því að vera annar höfundur verksins leikstýrir hún sýningunni. En hvernig kviknaði þessi hugmynd? „Við Stefanía vorum að vinna saman, en hún hefur leikið hjá mér áður. Ég fór að segja henni sögur og að mig langaði að gera eitthvað tengt verksmiðjunum. Í framhaldi af því fór hún að segja frá hugmynd sinni um það að gera eitthvað tengt því þegar Bretarnir komu hingað. Okkur fannst tilvalið að tengja þetta saman, þetta var svo spennandi og merkilegur tími,“ segir Saga. Verksmiðjurnar skipta Sögu miklu máli, en faðir hennar, Jón Ingimarsson, var formaður Iðju, félags verksmiðjufólks, í áratugi en félagið var stofnað 1936. „Okkur langaði svo að sýna líf fólksins sem var að vinna þarna og baráttu þess fyrir bættum kjörum. Unga fólkið í dag skilur þetta ekki, en á þessum tíma var ávallt unnið á laugardögum og vinnutíminn mun lengri en gengur og gerist í dag,“ segir Saga. Hún segir mikið af yngra fólki á Akureyri í dag ekki vita um tilvist verksmiðjanna og hversu mikill iðnaðarbær Akureyri var. Fjöldi leikara kemur að sýningunni og segir Saga aldurshópinn mjög dreifðan. Leikritið verður frumsýnt í kvöld á Melum í Hörgárdal. „Það er mikill kraftur í þeim og þetta verður ofsalega gaman,“ segir Saga.
Mest lesið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Fleiri fréttir Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Sjá meira