Ljósmyndari og geðlæknir skrifa vísindaskáldsögu Valgerður Þ. Jónsdóttir skrifar 15. október 2014 10:30 Mikkel vísindaskáldsöguhöfundur og fyrirsæta Gísla Dúa ljósmyndara.
Gísla Dúa Hjörleifssyni ljósmyndara og danska geðlækninum Mikkel Vossen Rasmussen varð vel til vina þegar þeir voru nágrannar í Árósum fyrir fimm árum. Í kjölfarið fóru þeir í ferðalag um Ísland þar sem Gísli Dúa var að viða að sér efni í ljósmyndabók. „Hugmyndin að vísindaskáldsögunni The Lost Astronaut eða Týnda geimfaranum kviknaði á ferðalaginu. Við ákváðum að vinna frekar saman að bók, sem væri hvort tveggja ljósmyndabók og vísindaskáldsaga með geimfara og íslenska náttúru í aðalhlutverkum. Mikkel kom enda margt undarlega fyrir sjónir í ferðinni og hafði á orði að sér liði stundum eins og geimveru á Íslandi,“ segir Gísli Dúa. „Þess vegna er bókin næstum því sannsöguleg,“ bætir hann við. Þótt Mikkel, höfundur sögunnar, skrifi á dönsku, kemur fyrsta prentun út í enskri þýðingu. Þeir félagar hafa verið með bókina í smíðum í fjögur ár og verkaskiptingin er skýr: Auk þess að taka ljósmyndirnar sinnir Gísli Dúi hvers kyns utanumhaldi; myndböndum, auglýsingum og því um líku. Mikkel er hins vegar höfundur sögunnar og jafnframt fyrirsæta Gísla Dúa. „Það kom sér vel að hann hafði fjárfest í grænum geimferðabúningi í Rússlandi löngu áður en vísindaskáldsagan varð að hugmynd. Hjálminn keyptum við hins vegar dýrum dómum á netinu,“ segir Gísli Dúa. Hugmyndin að baki bókinni er m.a. sú að hún höfði til túrista, sem geti lesið söguna sér til ánægju og jafnframt gagns á ferðum sínum um landið. GPS-punktarnir við myndirnar eigi svo að leiðbeina þeim á söguslóðir. Til að eiga upp í útgáfukostnað leita Gísli Dúa og Mikkel styrktaraðila og áheita á síðunni Karolina Fund.
Mest lesið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Fleiri fréttir Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Sjá meira