Verð með fjölskyldunni Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 11. október 2014 13:00
Kristjana á spennandi verkefni framundan sem er undirbúningur sýningar á Grikklandi. Fréttablaðið/Ernir „Ég er búin að halda upp á afmælið að mestu leyti með ferð um Pyreniafjöllin og ætla bara að eiga daginn með fjölskyldunni,“ segir Kristjana Samper sem verður sjötug á morgun. Hún segir soninn Baltasar meðal annars kominn til landsins til að fagna með henni. Í umræddri ferð kveðst hún hafa upplifað frábæra hluti, skoðað lítið þekktar hellaristur frá 10.000 til 6.500 fyrir okkar tímatal og heimsótt Taüll, rómanska kirkju í 1500 metra hæð. „Taüll hefur verið dálítið í uppáhaldi hjá okkur því lokaritgerð Baltasars, eiginmanns míns, í listasögu tengdist henni.“ Hún segir hann hafa alist upp í Barselóna. „En hann var mikil fjallageit og upplifði frelsi í Pyreniafjöllunum,“ bætir hún við. Sjálf ólst Kristjana upp austur við Sog hjá foreldrum og sex systkinum. „Pabbi var stöðvarstjóri við Sogið, lengst af sínum starfsferli. Hann hét Guðni Guðbjartsson og mamma Ragnheiður Guðmundsdóttir. Ég fékk að sýna í Ljósafossstöð fyrir nokkrum árum og svo var mér boðið að taka þátt í sýningu í Englandi síðasta vor. Þá gafst mér tækifæri til að sýna vídeóverk sem ég hafði gert í tilefni af sýningunni minni í Ljósafossstöð. Ég kallaði það Þar sem fossar bernsku minnar fegurst sungu, sem er tilvitnun í ljóð eftir Tómas Guðmundsson sem ólst líka upp við þessa fossa.“ Kristjana lætur ekki deigan síga því framundan er undirbúningur undir sýningu í Grikklandi að ári. „Mér hefur verið boðið að sýna í Naxos á Grikklandi. Það er mjög spennandi,“ segir hún. Nú vil ég vita hvar hún kynntist sínum katalónska Baltasar. „Það var nú bara á Mokka,“ segir hún glaðlega. „Hann var búinn að koma til landsins, fara og koma aftur og hafði kynnst systur minni og mági. Hún kveðst hafa verið í myndlistarskólanum hjá Hringi Jóhannessyni þegar þau kynntust. „Ég vann með skólanum því mig langaði að fara út og læra meira en missti áhugann þegar ég kynntist mínum manni og hélt bara áfam í mínu gutli. Svo fórum við að eiga börn, það var drifið af á tæpum þremur árum, við áttum Mireyu í ágúst 1964, Baltasar í febrúar 1966 og Rebekku Rán í maí 1967. Þegar hún var komin af höndum fór ég í Myndlista-og handíðaskólann og svo í framhaldsnám til Arizona í Bandaríkjunum.“
Mest lesið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Fleiri fréttir Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Sjá meira