Reikna með þriggja prósenta hagvexti Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. október 2014 07:00 Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar, kynnti þjóðhagsspá á Hilton Reykjavík Nordica. fréttablaðið/pjetur
Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að hagvöxtur verði 3,1 prósent á þessu ári samanborið við 3,5 prósent í fyrra. Síðan er spáð 3,2 prósenta hagvexti á næsta ári og 2,9 prósenta vexti á árinu 2016. Þetta kemur fram í þjóðhagsspá Íslandsbanka sem var birt í gær. Samhliða þessu muni hagur fyrirtækja og heimila halda áfram að batna. Hagvöxtur í ár verði byggður á miklum vexti í innlendri eftirspurn, sem mun jafnframt halda áfram að aukast allhratt á næstu tveimur árum þó að nokkuð dragi úr vextinum. Greining segir að framleiðsluslakinn sé nú nánast horfinn úr íslensku efnahagslífi. Hagvöxtur næstu tveggja ára verði það mikill samkvæmt spánni að framleiðsluspenna fari að myndast í hagkerfinu á tímabilinu. Því muni fylgja aukin verðbólga sem Seðlabankinn muni bregðast við með hækkun stýrivaxta. Einnig muni þróttmikill hagvöxtur birtast í því að atvinnuleysi minnkar frekar og staða vinnumarkaðarins batnar. „Á næsta ári spáum við að verðbólga aukist nokkuð frá yfirstandandi ári, og enn mun bæta í verðbólgutaktinn árið 2016. Aukinn gangur í efnahagslífinu mun væntanlega endurspeglast í hraðari hækkun launa og áframhaldandi raunhækkun fasteignaverðs. Verðbólgan verður engu að síður í grennd við verðbólgumarkmið Seðlabankans á spátímanum,“ segir í spánni.
Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira