Hafa íslenskir læknar efni á fjölskyldulífi? Íris Ösp Vésteinsdóttir skrifar 1. október 2014 07:00 Fáir læknar gerast svo hugrakkir að eignast börn á námsárunum. Fæstir hafa möguleika á annarri framfærslu en námslánum og það þarf mikla staðfestu til að sinna uppeldi meðfram námi sem krefst tæplega 200 stunda spítalaviðveru hvern mánuð síðustu námsárin fyrir utan heimalestur. Við útskrift eru flestir læknar nær þrítugu en tvítugu. Síðustu 10 ár hafa konur verið 55% nemenda í læknadeild HÍ og sem stendur eru konur rúmlega 60% þeirra Íslendinga sem læra læknisfræði erlendis. Þær sem ákveða að fresta barneignum þar til að námi loknu hafa því oft ekki mörg ár eftir af kjöraldri til þess. Sér í lagi ef börnin eiga að verða fleiri en eitt. Læknisstarfið krefst ýmiss líkamlegs álags og langar vaktir leggjast ofan á dagvinnu. Verkefnin eru mismunandi, allt frá því að hlaupa sjúkrahúsgangana á enda og aðstoða við endurlífgun, standa og aðstoða í langri aðgerð eða jafnvel rjúka í sjúkrabíl upp á háheiði um miðjan vetur. Sumar konur verða ófærar um slík líkamleg átök snemma á meðgöngu. Er það ásættanlegt fyrir sjúkling að vakthafandi læknir geti ekki framkvæmt nógu skilvirkt hjartahnoð? Er það ásættanlegt að læknir á vakt hætti sínu ófædda barni til að hjálpa öðrum? Eldri kollegar stóðu oft vaktina fram að settum degi en flestar þeirra vara okkur yngri við því og það er orðið algengara að kvenlæknar hætti fyrr töku vakta á meðgöngu. Eftir situr þá dagvinna virka daga frá 8-16 (sem hjá flestum stéttum teldist 100% starf). Það að hætta töku vakta er tvíeggja sverð. Það veldur tímabundið auknu álagi á aðra lækna innan sama vinnustaðar og vaktirnar skapa tekjurnar. Án þeirra eru launin 340.743 kr. fyrir kandídat og 370.485 kr. fyrir lækni með lækningaleyfi eða 254.692 kr. og 272.898 kr. eftir skatt.* Grunnviðmið fyrir einstakling í sambúð með eitt barn, án bíls og húsnæðis er 232.916 kr. **Hefur áhrif á mönnun Annað sem flækir málið er að almennir læknar vinna í stuttum tímabundnum ráðningum. Þetta getur haft áhrif á rétt læknis til fæðingarorlofs og verður til þess að margir almennir læknar fara samningslausir í fæðingarorlof og tapa hlunnindum fastráðningar s.s. réttindum til veikinda, sumarfrís o.fl. Þegar þetta tvennt er skoðað saman þá er skiljanlegt að það færist í aukana að læknar í fæðingarorlofi lendi í erfiðleikum til dæmis með afborganir námslána. Það að hluti kvenlækna hætti að taka vaktir á meðgöngu og flestar taki sér lengra fæðingarorlof en bekkjarbræður þeirra hefur nú þegar áhrif á mönnun. Kollegar eiga ekki að sitja eftir í súpunni þegar einn hverfur frá og neyðast til aukavakta án þess að ráða nokkru um það. Þetta snýst um almenna kröfu allra lækna að geta átt meiri tíma með fjölskyldu, vinum og áhugamálum. Það er ekki ásættanlegt að einungis með mikilli vaktavinnu ofan á dagvinnu geti læknar haft í sig, á og afgang til afborgunar námslána. Spá Læknafélags Íslands telur að á næstu 10 árum muni starfandi læknum fækka um 300 meðan þjóðinni fjölgar. Gæti þetta verið enn ein ástæða landflótta lækna? Höfum við efni á því? *Reiknað af skattur.is gert ráð fyrir einstakling, og greitt í lífeyrissparnað. Ekki er greitt í stéttarfélag miðað við þennan útreikning.**Reiknivél velferðarráðuneytis, velferdarraduneyti.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun Skoðun Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Sjá meira
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun