Sjálfstætt ráðuneyti dómsmála? Jónas Þór Guðmundsson og Skúli Magnússon skrifar 24. september 2014 07:00 Í grein sem birtist í Morgunblaðinu 30. janúar síðastliðinn spurðum við hvort nægilega vel hefði verið búið að málefnum dómstóla og réttarfars í yfirstjórn ríkisins og þá einkum í nýju innanríkisráðuneyti sem tók til starfa í ársbyrjun 2011. Töldum við margt benda til að sú breyting á Stjórnarráðinu sem þá var gerð hefði leitt til þess að málaflokkurinn fengi nú minna vægi og athygli en áður. Niðurstaða okkar var sú að ef ekki tækist að bæta stöðu dómstólanna hlyti að koma til skoðunar hvort ástæða væri til að endurvekja sjálfstætt ráðuneyti dómsmála. Vísi að sjálfstæðu dómsmálaráðuneyti má rekja til upphafs heimastjórnar árið 1904 og stofnunar Stjórnarráðs Íslands en ein af þremur skrifstofum þess fór með dóms-, skóla- og kirkjumál. Frá 1917 nefndust skrifstofurnar deildir og 1921 kom ráðuneyti í stað deildar. Ráðuneytin voru þá dóms- og kirkjumálaráðuneyti, atvinnu- og samgöngumálaráðuneyti og fjármálaráðuneyti. Árið 1947 voru skólamálin flutt í forsætisráðuneytið. Saga Stjórnarráðsins verður ekki rakin frekar hér en þó skal nefnt að dóms- og kirkjumálaráðuneytið fékk heitið dóms- og mannréttindaráðuneyti árið 2009 og í ársbyrjun 2011 voru dómsmála- og mannréttindaráðuneytið og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið sameinuð í eitt innanríkisráðuneyti. Sameiningin var liður í víðtækri breytingu á Stjórnarráðinu þar sem ráðuneytum var fækkað og þau stækkuð með sameiningum. Í tilviki þessara ráðuneyta lágu til grundvallar önnur sjónarmið en þau að málaflokkarnir hefðu verið taldir hafa sérstaka efnislega samstöðu. Löngum var litið á dóms- og kirkjumálaráðuneytið sem mikilvægt ráðuneyti, t.d. í stjórnarmyndunum, þótt ráðuneytið væri í seinni tíð hvorki sérlega stórt né helsta andlag flokkspólitískra stefnumiða. Í mörgum tilvikum var ráðherra dómsmála einnig ráðherra annarra ráðuneyta. Árið 1992 var til dæmis sami maður sjávarútvegsráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra og stýrði sem slíkur þeim umfangsmiklu breytingum á dómstólaskipaninni sem gengu í gildi það ár.Einn af grunnþáttunum Dómstólarnir og starfsemi þeirra eru einn af grunnþáttum stjórnskipunar ríkisins. Eðlilegt er að skipan Stjórnarráðsins endurspegli þetta mikilvægi með því að dómsmálum og skyldum efnum sé komið fyrir í sjálfstæðu ráðuneyti en ekki í skrifstofu stærra ráðuneytis. Einnig má setja spurningarmerki við þá tilhögun að skipa saman svo ólíkum málaflokkum sem dómsmálum og vegagerð. Þótt ekki sé ómögulegt að byggja upp sérþekkingu innan slíks „stór-ráðuneytis“ er hættan sú að áherslan á dómsmálin verði minni en þörf er á. Sjálfstætt dómsmálaráðuneyti hefur ekki óhjákvæmilega í för með sér kostnaðarauka fyrir ríkissjóð. Þvert á móti má halda því fram með rökum að traust og skilvirkt réttarkerfi spari ríki og borgurum þess útgjöld, öfugt við vanhaldið kerfi. Með sjálfstæðu dómsmálaráðuneyti væri leitast við að tryggja að dóms- og réttarfarsmál fengju meiri athygli en þau fá nú. Það er ekki eingöngu æskilegt heldur beinlínis nauðsynlegt. Því ber að fagna þeim hugmyndum sem fram hafa komið hjá ráðamönnum á síðustu vikum um endurreisn dómsmálaráðuneytisins. Þær samræmast einnig vel stefnu núverandi ríkisstjórnar um að gera grundvallarbreytingu á dómskerfinu með upptöku millidómstigs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Álftanes – ný byggð á flóðasvæði Einar Sveinbjörnsson Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir Skoðun Má lækka skatta? Helgi Brynjarsson Skoðun Flokksformaðurinn sem styður þjóðarmorð Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson Skoðun Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Álftanes – ný byggð á flóðasvæði Einar Sveinbjörnsson skrifar Skoðun Má lækka skatta? Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Um langa föstudaga, fólk á flótta og konur sem þora Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Horn í síðu fyrirtækjareksturs Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Flokksformaðurinn sem styður þjóðarmorð Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Bændur, páskalamb og sjókvíaeldi Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Húsnæðismarkaðurinn á Íslandi: Kerfisvandi – en líka tæknilegt tækifæri Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun „Forsjárdeila“ er ekki sönnunargagn í sakamálarannsókn Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Fæðuöryggi byrjar hér heima Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á heimilisleysi á Íslandi? Bjartur Hrafn Jóhannsson skrifar Skoðun Flott að fá það á hreint, Þorgerður Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kostnaður við borgarstjórn Reykjavíkur Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Búum við í Norður-Kóreu? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Fyrirframgreiðsla fyrir mannkosti Kári Stefánsson skrifar Skoðun Ekki okkar verðbólga Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Vangaveltur blóðmerabónda Heiðar Þór Sigurjónsson skrifar Skoðun Virðisaukaskattur er frábært fyrirbæri! Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Lífshlaupið - sterkari og heilbrigðari þjóð Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Dauðarefsing gegn börnum Yousef Tamimi skrifar Skoðun Þarf íþróttamaður að vera áhrifavaldur til að ná árangri? Egill Gunnarsson skrifar Skoðun Fjárfestum í verðmætasköpun Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kennslutími, kostnaður og árangur – hvað segja gögnin í raun Ómar Örn Magnússon,Linda Heiðarsdóttir,Jón Páll Haraldsson skrifar Sjá meira
Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Húsnæðismarkaðurinn á Íslandi: Kerfisvandi – en líka tæknilegt tækifæri Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun „Forsjárdeila“ er ekki sönnunargagn í sakamálarannsókn Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Kennslutími, kostnaður og árangur – hvað segja gögnin í raun Ómar Örn Magnússon,Linda Heiðarsdóttir,Jón Páll Haraldsson skrifar
Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun