Fjarlægðin gerir fórnarlömb falleg Benjamín Julian skrifar 3. júlí 2014 07:00 Einn er sá draugur sem hvílir yfir lífsglöðu heiðingjunum á Vesturlöndum, og hann er fátæktin þarna hinumegin. Á nokkurra vikna fresti skjóta fréttamenn að okkur áminningu um að enn séu svertingjarnir að drepa hver annan, fólkið í Bangladess að klára líftóruna á saumaskap rauðra hipsterabuxna og svo voru fátæku börnin nýlega að flytja frá Afríku til Indlands, þar sem ástandið ku vera engu betra. Stundum sleppur stöku fátæklingur hingað norðurfyrir og biður um hæli af mannúðarástæðum, en því miður eru það alltaf forhertir ribbaldar og glæponar – raunverulegu fórnarlömbin í sjónvarpinu eru, eins og við vitum öll, börn með þrútnar bumbur, grátandi mæður og fótalausir fyrrverandi barnahermenn. Þessir menn sem hingað koma eru ágætlega uppihaldnir karlar á besta aldri, nákvæmlega sú manngerð sem velþekkt er að sækist í mafíur og eiturlyfjasmygl. Þeim er enda hent strax suðurfyrir fátæktarmörkin aftur, þar sem þeir eru best geymdir. Eina leiðin til að hjálpa sveltandi stríðsfórnarlömbum er að gefa stórum stofnunum peninga svo þær geti bjargað málunum. Ríkið, Oxfam, Rauði krossinn, í raun hver sem getur farið suðurfyrir og hjálpað við að stoppa hamfarirnar í sjónvarpinu. Svona þúsundkall á mánuði er ágætt, því leigan hérna er svo há, og þúsundkall kaupir líka miklu meira þar en hér. Það er kannski ekki alltof slæmt að sleppa honum heldur, því hagfræðingar í moldríkum hugveitum fullyrða að þróunaraðstoð skekki markaðshlutföll á svæðinu, og geri í raun illt verra. Hjálparstofnanirnar hafa sennilega gleymt sér í allri góðvildinni, eða eitthvað, og svo er alveg margt hægt að gera við peninginn hérna heima líka. Kannski kaupa Fair Trade-súkkulaði í dessertinn, ef hagfræðingarnir hefðu ekki fordæmt það í leiðinni. Ríkið gefur líka þúsundasta hluta landsframleiðslu í þróunaraðstoð, sem slagar hátt uppí 0,7% lágmarkið sem Sameinuðu þjóðirnar mæla með.Óséður rasisti?Þó þetta sé allt frekar flókið, og best látið kyrrt liggja, getum við styrkt neyðaraðstoð. Enginn véfengir að hún er alltaf góð og gild. Íslenska ríkið sendi í stríðinu í Afganistan nokkra menn á staðinn í stjörnuprýddum einkennisklæðum með hríðskotabyssur til að passa friðinn. Svo hjálpaði það til við að stoppa neyðarástandið í Írak með því að sprengja keisarahöllina og hengja keisarann þar. Þegar flóðbylgjur og fellibyljir dynja á fólkinu í sjónvarpinu standa Íslendingar flestum framar í að senda neyðaraðstoð. Eftir að sextíuþúsund manns höfðu dáið í sýrlenska borgarastríðinu póstlagði ríkið í flýti tuttugu og fimm milljónir þangað, svipað mikið og það gaf til hjúkrunarheimilisins Eirar eftir að fyrrverandi borgarstjóri keyrði það í gjaldþrot. Íslenska ríkið skar niður þróunaraðstoð því hér er heilbrigðiskerfið í neyð: okkur vantar æðaþræðingartæki (200 milljónir), veirurannsóknartæki (50 milljónir), segulómunartæki (200 milljónir) og margt, margt fleira. Og þá er einfaldlega ekki mikið eftir til að gefa bumbubörnunum. Þegar á heildina er litið væri kannski ágætt að biðja, en við erum löngu hætt að trúa á Guð. Í staðinn hefur rignt yfir Afríkulönd skínandi hvítum trúboðum, sem kenna þeim að biðja fyrir sjálfum sér. Afleiðing af þessu er að nú má í Úganda ekki vera hommi, því það veldur bakverkjum og smitar börnin – og Guð vill það ekki. Kannski er þetta svona flókið. Kannski eru allir hælisleitendur glæponar og allt þróunarstarf til einskis. En kannski er þetta miklu einfaldara. Kannski langar okkur ekki að hjálpa, og við leitum allra afsakana til að sleppa því. Kannski þykir okkur vænna um hversdagsleg þægindi okkar en lifibrauð fjarlægra fátæklinga. Gæti það verið? Gæti verið að í raun séu allir þessir hælisleitendur raunverulegir flóttamenn, og gæti verið að í Íslendingum hvíli óséður rasisti sem vill bara frekar halda þeim í útlöndum? Ef svo er ekki er tími til kominn að sýna það í verki. Fjarlægðin gerir fórnarlömb falleg. En hún afsakar ekki að gera ekkert, eða það minnsta sem maður kemst upp með án þægindaminnkunar, til að hjálpa þeim. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar