Skoðun

Breytinga er þörf í Reykjanesbæ

Magnús Karlsson skrifar
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins fer fram nú í byrjun mars. Þá gefst okkur bæjarbúum kostur á að velja á milli manna. Bæjarfélagið er með skuldir umfram þau viðmiðunarmörk sem lög setja og hefur bærinn þurft að standa í nauðasamningum með hlutdeildarfélög sín til að lækka skuldir sínar. Þannig hefur náðst einhver árangur í lækkun skulda auk þess sem allar seljanlegar eignir bæjarins hafa verið seldar.

Því miður hefur afrakstur af söluverði eignanna ekki verið notaður nema að hluta til að greiða niður skuldir. Annað hefur farið í að greiða óhagkvæman rekstur sveitarfélagsins. Ljóst er að óbreytt stefna mun leiða til þess að Reykjanesbær verði hið nýja Álftanes með þeim eina mismun að við höfum ekki forríka nágranna til að taka yfir skuldir okkar eins og þeir höfðu.

Vegna þessa er brýn þörf á breyttum hugsanagangi. Gott dæmi um þann viðsnúning sem við sem samfélag þurfum á að halda er Árborg. Bæjarfélagið Árborg var með svipað skuldahlutfall og Reykjanesbær er með nú. Eini mismunurinn er sá að skipt var um mann í brúnni í upphafi kjörtímabils og ráðinn nýr bæjarstjóri sem hafði það til ágætis að vera ópólitískur og atvinnumaður í því að reka fyrirtæki og stofnanir. Hann kunni til verka og forgangsraðaði rétt.

Skemmst er frá að segja að Árborg er nú komið undir viðmiðunarmörk skulda sem er miðað við í sveitarstjórnarlögum. Þessu hafa þeir náð án þess að skerða þjónustu og hafa á sama tíma framkvæmt í nýjum mannvirkjum vegna þess svigrúms sem minni skuldir skapa. Mestu munar þar um að stefnubreyting hefur orðið í ráðningum. Aðeins er miðað við raunverulegar þarfir bæjarfélagsins og hæfni viðkomandi. Nú stendur valið um hvort við viljum fara þá leið sem Álftanes fór eða hvort við viljum fara leiðina sem Árborg fór.

Leiðin úr ógöngunum er að kjósa nýja forystu sem vill fara þá leið að fækka í yfirstjórn, sleppa því að byggja fleiri víkingahallir en nýta frekar fjármunina í grunnþjónustuna og í að greiða niður skuldir.

Ég skora á bæjarbúa að mæta í prófkjör sjálfstæðismanna og segja sína skoðun.



Lesendur Vísis geta sent inn greinar á ritstjorn@visir.is. Greinunum þarf að fylgja mynd af höfundi.




Skoðun

Sjá meira


×