„Þeir eru báðir svona klikkaðir“ 1. febrúar 2014 11:30 Snorri segir íslensku og Bandarísku flytjendurna ætla saman í Bláa Lónið. MYND/Einar Bárðarson „
Högni og strákurinn sem var með honum pössuðu vel saman. Þeir eru báðir svona klikkaðir,“ segir Snorri Helgason um bandarísku tónlistarmennina sem stíga munu á stokk með þeim Högna Egilssyni og Lay Low í Iðnó þann 6. febrúar. Tónleikarnir kallast Denver Calling og fylgja eftir tónleikunum Reykjavík Calling sem haldnir voru í Denver í Colorado-fylki í haust. „Það var bara mjög næs,“ segir Snorri um þá tónleika. Íslensku tónlistarmennirnir fengu þá úthlutað tónlistarmönnum í svipuðum dúr og þau sjálf frá útvarpsstöð þar ytra. Kom þeim að sögn Snorra vel saman. „Þau eru mjög klár og skemmtileg,“ segir hann. „Þau koma núna á þriðjudaginn og við ætlum ábyggilega að kíkja með þeim í sveitina, gera eitthvað svona beisikk.“ Hugmyndin með tónleikunum var sú að draga að áhorfendur sem kynnu vel að meta íslensku flytjendurna og nú stendur til að endurtaka leikinn hérlendis. „Við vorum ekkert að flækja þetta, snúum þessu bara á rönguna og köllum þetta Denver Calling,“ segir Einar Bárðarson, forstöðumaður Höfuðborgarstofu. „Ég skora á tónlistaráhugafólk að koma og fylgjast með. Það þarf ekki annað en að fíla eitthvað af íslensku tónlistarmönnunum og það er nú ekki erfitt.“ Tónleikarnir hefjast klukkan níu, að lokinni setningu Vetrarhátíðar í Reykjavík, og er aðgangur ókeypis.
Mest lesið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Fleiri fréttir Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Sjá meira