Vilja fá efnaðari ferðamenn Gunnar Leó Pálsson skrifar 28. janúar 2014 09:30 F.v. Guðrún Helga Brynleifsdóttir, Hildur Jóna Gunnarsdóttir, Jónína Bjartmarz, Ásta B. Hauksdóttir, Kolbrún Hrund Víðisdóttir og G. Harpa Hauksdóttir. fréttablaðið/daníel „
Við viljum fá hingað til lands efnaðri ferðamenn, með meiri kaupgetu og horfum þá mest til Asíu,“ segir Jónína Bjartmarz, einn stofnenda ferðaskrifstofunnar Iceland Europe Travel Partnership, sem opnaði skrifstofu sína formlega síðastliðinn föstudag. Ásamt Jónínu eiga þær Ásta B. Hauksdóttir, Kolbrún Hrund Víðisdóttir, Hildur Jóna Gunnarsdóttir, Guðrún Helga Brynleifsdóttir og G. Harpa Hauksdóttir ferðaskrifstofuna. Áhersla í markaðssetningu á ferðaþjónustu hefur mest verið tengd við áfangastaði Icelandair í beinu áætlunarflugi en Iceland Europe Travel stefnir að því að fjölga ferðamönnum frá öðrum og fjarlægari markaðssvæðum, aðallega Kína, Malasíu og öðrum suður-austur Asíu löndum. „Aðeins um fjögur prósent erlendra ferðamanna á Íslandi koma frá Asíu og við ætlum að fjölga þeim. Við fórum í viðskiptaferðir til Peking og Kúala Lúmpur síðasta sumar og kynntum þar Ísland, þá þjónustu sem við bjóðu upp á og samstarfsaðila okkar úr íslenskri ferðaþjónstu. Einnig fórum við til London og St. Pétursborgar síðastliðið haust.“ segir Jónína. Þær hafa allar víðtæka starfsreynslu, flestar úr ferðabransanum og þekkja vel til í Asíu. „Ég bjó í Kína í samfellt í um eitt og hálft ár, og ferðast enn mikið á milli og hef ferðast um alþýðulýðveldið þvert og endilangt. Þá bjó Ásta í Malasíu í átta ár,“ segir Jónína og bætir við að allar hafi þær gríðarlegan áhuga á að kynna Ísland og hin Norðurlöndin fyrir efnameiri Asíubúum sem áfangastaða á Norðurslóðum. „Sterkari saman er mottóið okkar og samstarfsaðilar okkar um kynningu á Íslandi og því sem við höfum upp á að bjóða eru Harpa, Bláa lónið, Selasetrið á Hvammstanga, Norðurflug, ásamt mörgum fleiri aðilum.“ Við höfum látið hanna og prenta sérstakan landkynningarbækling sem við kynnum og dreifum víðsvegar í Asíu hjá ferðaskrifstofu. „Við bjóðum einnig Íslendingum upp á sérsniðnar ævintýraferðir til Asíu, eins lands eða fleiri í sömu ferð, þar sem við leitumst við að tryggja að þeir fái notið alls hins besta og einstakrar upplifunar og hverjum stað. Iceland Europe Travel ferðaskrifstofan er til húsa að Aðalstræti 11, 6. hæð.
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira