Heillaði meðlimi Wagnerfélagsins Ugla Egilsdóttir skrifar 22. janúar 2014 11:00 Þorleifur Örn Arnarsson.
Þorleifur Örn Arnarsson frumsýndi síðastliðinn föstudag uppsetningu sína á Niflungunum eftir Christian Friedrich Hebbel í borgarleikhúsinu í Bonn í Þýskalandi. Auk Þorleifs koma Símon Birgisson, Filippía Elíasdóttir og Vytautas Narbutas að uppsetningunni, en þau hafa öll starfað í íslensku leikhúsi. „Maður finnur í öllu umhverfi þessa leikhúss hvað það er stórt í sniðum,“ segir Þorleifur Örn. „Bygging þess á sjöunda áratugnum var liður í því að búa til höfuðborgarstemningu þegar Bonn var höfuðborg Vestur-Þýskalands.“ Leikhúsið nýtur mikillar virðingar í Þýskalandi. Þorleifur segist samt sem áður ekki stefna á nein heimsyfirráð. „Ef maður væri á þeim buxunum væri þessi sýning skref í þá átt, en svo er ekki. Þetta er hluti af ferðalagi sem við erum á og á hverju ári stækka leikhúsin og verkin og pressan eykst. Við verðum líka villtari og villtari í því hvernig við búum til leikhús.“ Leikritið Niflungarnir, sem var skrifað á nítjándu öld, er verk sem allir Þjóðverjar þekkja. „Það er eins og Hamlet fyrir Bretum, eða Skugga-Sveinn eða Galdra-Loftur fyrir okkur Íslendingum. Þessi saga er ein af þeim sem nasistarnir lyftu hvað mest upp á stall. Fræg er ræða sem Hermann Göring hélt yfir hermönnum í Stalíngrad árið 1943 rétt fyrir fall Stalíngrad. Hann biðlaði til hermannanna að standa saman og deyja saman, eins og Niflungarnir í höll Atla Húnakonungs.“Mynd/Thilo Beu.Þorleifur segist hafa ákveðið frelsi undan nasistasögunni sem Íslendingur. „Yfirleitt er lögð meiri áhersla á hana í uppsetningum á þessu leikverki. Mín nálgun var ekki þrúguð sögulegri merkingu umfram það að við viðurkenndum sögulegu merkinguna í leikmyndinni. Vytautas Narbutas byggði fyrir okkur eins konar ruslahauga þýskrar sögu í leikhúsinu, og á þeim lékum við Niflungana okkar.“ Þorleifur segist hafa einblínt á hugmyndina um hetjuna í sviðsetningu sinni. „Ég velti hetjunni fyrir mér út frá svipaðri nálgun og bókmenntafræðingurinn Helga Kress hefur skrifað um Íslendingasögurnar. Þessar hetjur eru hlægilegar út frá nútímasjónarmiði. Ég leyfi mér að gera Niflungana nánast að kómedíu.“Leikmyndin í Niflungunum er eftir Vytautas Narbutas.Mynd/Thilo BeuSýningin hefur fengið góða dóma. „Sýningin hefur vakið sterk viðbrögð hjá fólkinu sem ég hélt að myndi ekki skilja þetta. Ég var kallaður á fund hjá Wagnerfélaginu, sem er einhver íhaldssamasti félagsskapur í Þýskalandi, og var beðinn um að útskýra nálgun mína á verkinu. Í þeim félagsskap þekkir fólk verkið utan að og spyr krefjandi spurninga, og þetta var fólkið sem svo var hrifnast að frumsýningu lokinni.“ Í uppfærslu Þorleifs er ýmislegt sem hann taldi fyrirfram að myndi koma við kaunin á hópi áhorfenda. „Kona fer úr að neðan í sýningunni. Svo eru karakterar smurðir í blóði og drullu. Þessir hlutir eru yfirleitt á bannlista góðborgaraáhorfenda, en það virðist vera nægilega sterkt innihald í sýningunni til þess að fólk kaupi það.“ Þorleifur heldur að sýningin höfði til ungs fólks. „Það væri gaman ef við náum að brúa kynslóðabilið. Ef leikhús er gott þá þykir fólki leikhúsið vera merkilegur staður, og ég held okkur hafi tekist það þarna.“
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira