Sarah Linden í peysu eftir Röggu Eiríks Ólöf Skaftadóttir skrifar 20. janúar 2014 10:00 Ragnheiður vissi ekki að peysan yrði í þáttunum. Vísir/Stefán „
Ég sat heima og var að horfa á tvöfaldan lokaþátt The Killing í seríu þrjú – allt í einu sé ég aðalleikkonu þáttanna, Mireille Enos, í peysu eftir mig!“ segir Ragnheiður Eiríksdóttir, prjónahönnuður og hjúkrunarfræðingur, en hún hefur á undanförnum árum kennt prjón víða um heim og hannað prjónaflíkur. „Peysan var örlítið breytt, en uppskriftin heitir Maren, eftir systur minni,“ heldur Ragnheiður áfram, létt í bragði. „Þannig er mál með vexti að ég kenndi netnámskeið á heimasíðunni Craftsy, sem rúmlega fjögur þúsund manns eru nú þátttakendur í, og uppskriftin sem ég fer í gegnum á námskeiðinu er einmitt Maren. Eins og ég segi þá var peysunni örlítið breytt, en þannig vil ég hafa nemendur mína – skapandi prjónara,“ segir Ragnheiður jafnframt, sem veit ekki enn þá hver prjónaði peysuna eftir hennar uppskrift á leikkonuna.Falleg peysa Mireille Enos klæðist hér peysu sem er prjónuð eftir uppskrift Ragnheiðar.„Ég finn út úr því á endanum. Það er ótrúlega skemmtilegt fyrir prjónahönnuð að sjá verk sín á fólki, ég tala nú ekki um í þessu samhengi,“ segir Ragnheiður, sem viðurkennir að hún hafi orðið undrandi þegar hún sá Enos í peysunni. Bandaríska sjónvarpsserían The Killing er byggð á dönsku þáttaröðinni Forbrydelsen og fjallar um rannsóknarlögreglukonuna Söruh Linden sem í bandarísku útgáfunni er leikin af Mireille Enos. Í upprunalegu útgáfunni klæddist aðalleikkonan, Sofie Gråbøl, peysum eftir færeyska hönnunarteymið Guðrún & Guðrún en í bandarísku endurgerðinni eru notaðar ýmiss konar prjónapeysur, þar á meðal Maren. Fyrsta þáttaröðin var frumsýnd í apríl árið 2011 vestan hafs og var tilnefnd til fjölda Emmy-verðlauna og Critics‘ Choice-verðlauna. Þá hafa áhorfstölur ekki látið á sér standa og hefur um ein og hálf milljón manna í Bandaríkjunum horft á hvern þátt í þriðju þáttaröðinni.
Mest lesið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Fleiri fréttir Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Sjá meira