Handbók fyrir foreldra – samfélagsmiðlar og internetstjörnur Ólöf Skaftadóttir skrifar 11. janúar 2014 11:00
Hvort sem fólk vill tísta hugðarefni sínum í 140 stöfum, „gramma“ 612x612 px ljósmynd á góðri stundu eða „Pinteresta“ uppskrift að hollum kjúklingarétti, eru leiðir til þess að ná og deila góðum stundum í gegnum samfélagsmiðla nánast óteljandi. Þá hafa margir öðlast heimsfrægð í gegnum miðlana, eins og sást kannski hvað best í Smáralind um síðastliðna helgi þegar „Vænararnir“ Nash Grier og Jerome Jarre heimsóttu verslunarmiðstöðina með þeim afleiðingum að öngþveiti myndaðist og nokkrir meiddust í múgæsingnum. Atvikið kann að hafa komið mörgum sem eldri eru og láta sér Facebook nægja í opna skjöldu. Vísir tók saman eins konar handbók um samfélagsmiðla sem eru hvað vinsælastir í dag og fólk sem hefur öðlast „internet-heimsfrægð“ í gegnum þá.Facebook Facebook er vinsælasti samfélagsmiðill í heimi og yfir milljarður manna nýtir sér miðilinn. Facebook er heimasíða, en einnig eru til Facebook-„öpp“ fyrir Apple- og Android-græjur. Notendur stofna reikning og geta hlaðið upp myndum, áhugamálum, símanúmeri, tölvupóstfangi og fleiri persónulegum upplýsingum. Fólk getur haft samskipti við vini sína og aðra í gegnum einkaskilaboð, eða skilið eftir skilaboð á veggjum vina sinna sem aðrir geta þá líka séð. Þá er hægt að spjalla við aðra notendur sem eru á síðunni samtímis í spjallglugga. Einnig er hægt að bjóða vinum sínum á viðburði, stofna hópa og svo mætti lengi telja.Camila Coelho heldur úti Instagram-reikningnum MakeupbyCamila.AFP/NordicPhotos Instagram Instagram er ljósmynda-„app“ hannað fyrir iPhone, en er einnig hægt að nota í iPad og Android-símum. Instagram notar myndavélina á tækinu þínu til að taka myndir eða myndskeið og þaðan er hægt að velja síu á myndina, sem til að mynda breytir litnum eða áferðinni. Þannig hafa notendur Instagram, sem eru um 150 milljón talsins, sinn eigin reikning þar sem þeir geta séð myndir sem vinirnir setja inn á sinn reikning. Þannig geta notendur látið sér líka við myndir vina sinna eða skilið eftir athugasemdir.Camila Coelho er með 1.672.525 fylgjendur á Instagram og heldur úti reikningnum MakeupbyCamila. Camila er frá Brasilíu en býr í Bandaríkjunum og öðlaðist frægð sína í gegnum Instagram og YouTube, þar sem hún hleður upp myndböndum og myndum af tísku- og förðunarráðum.PinterestPinterest er miðill sem gerir notendum kleift að fylgjast með áhugamálum sínum og sækja hugmyndir til annarra notenda. Á Pinterest safna notendur myndefni eða textum sem þeir koma fyrir á eins konar töflu og geta deilt því. Þannig er hægt að búa til flokka undir myndefnið, á borð við viðburði, áhugamál, mat og þar fram eftir götunum og notendur geta fylgst með áhugamálum sínum eftir flokkunum. Notendur geta skoðað töflur annarra, deilt þeim á eigin töflu, eða látið sér líka við myndefni annarra.Christine Martinez er stílisti frá Kaliforníu sem deilir Pinterest-reikningi sínum með hundinum Miles. Hún hefur rúmlega fimm og hálfa milljón fylgjenda og 56 töflur, eða flokka. Þeir eru meðal annars gjafahugmyndir fyrir minna en $50, fylgihlutir fyrir hunda, græjur og dót, tíska svo einhverjir séu nefndir.Snapchat Um 50 milljón manns um allan heim nýta sér þjónustu Snapchat, samkvæmt heimildum Forbes-tímaritsins. Snapchat er „app“ fyrir iPhone, iPad og Android-tæki sem gerir notendum kleift að senda ljósmyndir og örmyndskeið til annarra notenda. Notendur geta svo tímastillt efnið, þannig að það er sýnilegt þeim sem tekur á móti í 1-10 sekúndur. Svo eyðist efnið og ekki er hægt að nálgast það aftur.Tumblr Áður en samfélagsmiðlar komu til sögunnar voru bloggsíður gríðarlega vinsælar. Tumblr er blanda af hvoru tveggja. Tumblr gerir notendum sínum kleift að deila hverju sem er. Texta, ljósmyndum, tilvitnunum, tónlist eða myndskeiðum hvaðan sem er, úr tölvunni, símanum, tölvupósti og svo mætti lengi telja.Matt Binder bjó til bloggið Public Shaming, þar sem hann tekur skjáskot af færslum á Twitter og Facebook-þráðum sem eru móðgandi í garð þjóðfélagshópa eða einstaklinga. Bloggið nýtur gríðarlegra vinsælda og hafa mál sem hann hefur vakið athygli á ratað á síður fjölmiðla.Twitter Twitter hefur oft verið lýst sem sms-i internetsins. Miðillinn virkar þannig að skráðir notendur geta lesið tíst og tíst sjálfir. Tíst er eins og lítið blogg, en færslan má ekki fara yfir 140 stafi. Hægt er að merkja færslur sínar með kassmerki (#) eftir umfjöllunarefni. Þannig geta ókunnugir rætt saman um sameiginlegt málefni. Einnig er hægt að nota Twitter í gegnum heimasíðuna, SMS, eða „appið“ sem hægt er að fá í bæði Apple og Android. Íslendingar sem hafa flesta fylgjendur á Twitter eru Björk með um hálfa milljón fylgjenda, hljómsveitirnar Of Monsters and Men með tæplega 300,000 fylgjendur, og Sigur Rós með tæplega 170,000 fylgjendur. Þá er Jón Þór Birgisson, betur þekktur sem Jónsi í Sigur Rós, með um 152,000 fylgjendur.Vine Vine er sambærilegt samskiptamiðlinum Instagram, þar hafa notendur sinn eigin reikning þar sem þeir geta séð myndskeið sem vinirnir setja inn á sinn reikning. Þá er hægt að deila myndböndunum á Facebook og á Twitter. Grundvallarmunurinn er sá að einungis er hægt að hlaða upp sex sekúndna örmyndböndum á Vine.KingBach er tuttugu og sex ára gamall og hefur flesta fylgjendur á samskiptamiðlinum Vine, tæplega fimm milljónir talsins. KingBach setur inn grínmyndskeið sem njóta gríðarlegra vinsælda. Honum hefur tekist að hafa upp úr frægðinni, en hann selur boli með slagorði sínu: But That Backflip Though, selur skopstælingar af vinsælum lögum á iTunes og rukkar fyrirtæki fyrir að búa til Vine undir þeirra nafni.Blair og Elle Fowler urðu frægar á YouTube. YouTubeYouTube er heimasíða þar sem hægt er að nálgast myndbönd. Heimasíðuna heimsækir rúmlega milljarður notenda í hverjum mánuði. Á heimasíðunni geta notendur hlaðið upp, skoðað og deilt hvers kyns myndböndum. Þá er hægt að láta sér líka við myndbönd annarra notenda og skilja eftir athugasemdir fyrir neðan myndböndin.Elle Fowler, fædd 1998, og Blair Fowler, fædd 1993, eru systur sem hlaða upp tísku- og hönnunarkennslumyndböndum á YouTube undir nöfnunum AllThatGlitters21 (Elle) og juicystar07 (Blair). Blair hefur tæplega tvær milljónir fylgjenda og systir hennar, Elle, rúmlega milljón.
Mest lesið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Sjá meira