Kærastinn sem allir eru að tala um Gunnar Leó Pálsson skrifar 9. janúar 2014 11:30 Bassi Ólafsson er hér ásamt kærustunni sinni Ernu Kristínu. Á milli þeirra er hundurinn Tumi sem stefnir óðfluga á það að verða kvikmyndastjarna. mynd/einkasafn „
Þetta byrjaði þegar kærastan var í prófum í háskólanum og var gjörsamlega að mygla, eða mygla er eiginlega of vægt orð til að lýsa því. Þá fór ég að reyna að stytta daginn fyrir hana með myndbandi á hverjum degi í desember,“ segir draumakærastinn og trommuleikarinn Bassi Ólafsson. Hann var iðinn í desembermánuði við að senda kærustunni sinni og guðfræðinemanum, Ernu Kristínu Stefánsdóttur, myndbönd í þeim tilgangi til að gleðja hana í prófatíðinni og hefur þessi gjörningur hans vakið mikla athygli undanfarið. Nú hefur verið stofnuð læksíða á Facebook sem ber nafnið Bassi Ólafsson – Kærastinn og hafa tæplega fjögur þúsund manns lækað þá síðu á einungis þremur dögum. „Þetta er búið að dreifast eitthvað óvenju hratt út um allt net þannig að nú er fólk allt í einu byrjað að pikka í hvert annað úti í búð flissandi, ég sé það alveg,“ segir Bassi léttur í lundu. Hann bætir við að það gleðji hann mikið að fólk geti hlegið að þessu. „Það er eitthvað svo miklu auðveldara og skemmtilegra að lifa lífinu með gríni og sjá skoplegar hliðar á alvarlegum málum.“ Bassi er trommuleikari og hefur komið fram með listamönnum á borð við Benny Crespo"s Gang, Megas, Lay Low, Kiriyama Family og Pétri Ben svo fáeinir séu nefndir. Eru félagarnir ekkert að skjóta á rómantíska trommarann? „Nei, nei, þeir eru sultuslakir. Þeim finnst þetta bara skondið af því að ég er bara alls ekki týpan í þetta dæmi, vera með einhverja opinbera grínsíðu,“ segir Bassi léttur í lundu. Það má segja að Bassi setji ansi gott fordæmi fyrir aðra kærasta með þessum skemmtilegum myndböndum. „Tilgangurinn var að gleðja kærustuna og hún er glöð þannig að já, mér finnst það nú vera gott fordæmi til að fylgja allavega.“ Hann segist ekki vita til þess að Erna Kristín hafa fengið kalt augnaráð frá öðrum kærustum út af öfundsýki. Spurður um þau myndbönd sem aðdáendur megi búast við á næstunni, segir hann það bara fara eftir því hvernig lífið spilist. „Það eru sannleikskorn í flestum af þessum myndböndum, bara vel ýktar útgáfur. Ég fór til dæmis á þetta jólaball með dóttur minni um jólin og það voru allir hoppandi og dansandi í geggjuðu stuði að syngja um átta litla negrastráka á meðan ég stóð þarna með kjálkann niðri í gólfi að slá mig utan undir til að vera viss um að ég væri staddur á árinu 2013!“ útskýrir Bassi. Hann bætir við að hann verði líklega svefnlaus og hrukkóttur við að gera brandara fyrir fólk næstu vikur og mánuði sennilega.
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira