Kaupir húsmuni frekar en föt Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 7. janúar 2014 10:15 Tinna Pétursdóttir hönnuður heldur mikið upp á lampann Deux. mynd/gva
deux-lampinn er í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Kunningjakona mín er stálsmiður og hönnuður, en hún keypti hönnunina á lampanum og framleiðir hann sjálf. Hún gaf mér eitt stykki en hann er nýkominn á markaðinn í Berlín. Lampinn er öðru vísi og mikið stofustáss. Svo leiðist mér ekki að það eiga ekki margir svona lampa,“ segir Tinna Pétursdóttir, grafískur hönnuður og fagurkeri, þegar hún er spurð út í uppáhaldshlutinn á heimilinu. Hún segist forðast tískubylgjur og viðurkennir að tengjast hlutum tilfinningaböndum. „Ég tengist hlutum kjánalega mikið og nenni ekki að eiga hluti sem ég tengist ekkert. Það er því ekki hægt að tala um neinn ákveðinn stíl heima hjá mér, þetta eru bara persónulegir hlutir sem ég umkringi mig með. Þannig líður mér best. Ég er mikill fagurkeri og stöðugt að dunda mér við heimilið og breyta til. Skipta um liti, hengja eitthvað upp eða taka niður og skipta út römmum. Ég er samt ekkert í því að hreinsa allt út og skipta um stíl, ég lappa frekar upp á, skipti um höldur og slíkt,“ segir Tinna og segist frekar kaupa sér hluti fyrir heimilið en föt og skó. Tinna hannar vörur undir merkinu Dóttir & Sonur, meðal annars veggfóður, púða og plaköt og þá vakti loftljósið Lightlace athygli þegar það kom út fyrir nokkrum misserum. Tinna er grafískur hönnuður og segist yfirleitt byrja að búa til munstur og síðan spretti hugmyndirnar út frá þeim.Nýjasta varan Tinna vinnur mikið af munstrum og var að senda frá sér nýtt plakat. Vörurnar má nálgast í Aurum í Bankastræti og Farva í Álfheimum. Þá heldur Tinna úti vefverslun á www.dottirandsonur.com. mynd/ari magg„Ég fór aðeins út fyrir þægindarammann við hönnun ljóssins, sem var bara mjög skemmtilegt. Yfirleitt vinn ég munstur og var einmitt að gera nýtt plakat núna, sem ég er búin að setja upp hjá mér,“ segir Tinna. En skreytir hún heimilið mikið fyrir jólin? „Ég skreyti rosalega mikið. „Less is more“ á alls ekki við hjá mér,“ segir hún hlæjandi. „Ég safna kúlum og á mikið af vintage-jólakúlum í bland við pappaskraut og föndur frá börnunum, það fer allt upp. En svo fæ ég algjört ógeð og verð að drífa allt niður, strax eftir jól.“ Nánar má forvitnast um hönnun Tinnu hér
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira