Frækin hafmeyja í fjörðum Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 4. janúar 2014 10:00 Boga Kristín starfar sem ferðafræðingur hjá CCP og sér þar um öll ferðamál. Hún vermdi kroppinn í íslenskri ull þegar hún komst ekki beint í heitan pott að sjósundi loknu. mynd/gva
Á þjóðhátíðardaginn synti Boga út Hafnarfjörð með íslenska fánann á lofti.mynd/úr einkasafni Ferðafræðingurinn Boga Kristín Kristinsdóttir strengdi verðugt áramótaheit um áramótin 2012 og 13 en það var að synda 50 metra í 50 fjörðum á 50. aldursári sínu. Hún fylltist söknuði og trega þegar sundinu lauk við Hofsós. „Mér tókst ætlunarverkið með léttum leik,“ segir Boga sem strengir stór áramótaheit á fimm ára fresti. „Þegar ég varð 45 ára kleif ég 45 tinda og þegar ég verð 55 ára ætla ég sigla á kajak um 55 stöðuvötn,“ segir Boga, hvergi bangin. Fyrsta fjörðinn synti hún úr Nauthólsvík á nýársdag í fyrra og í ágústlok hafði hún lagt alla fimmtíu firðina að velli. „Flesta firði synti ég á Vestfjörðum í júní þegar ég náði 38 fjörðum á sex dögum, sem var töluvert puð í öllum veðrum. Ég ætlaði mér að synda fimmtíu metra í hverjum firði en synti oftast hundrað metra og alls 400 metra í Breiðafirði sem er mér hjartfólginn því ég er fædd á Saurbæ í Dölum.“ Þrátt fyrir leiðindaveður síðasta sumar segir Boga veðrið yfirleitt hafa leikið við sig. „Þegar maður virðir og dáir náttúruna spilar hún með. Ég reyndi að fara varlega og var alltaf með manneskju á bakkanum sem var við öllu búin færi eitthvað úrskeiðis. Ég hefði ekki náð markmiðum mínum nema að hafa með mér fjölskyldu og vini sem nenntu að skrönglast þetta með mér um allt land,“ segir Boga, himinsæl að hafa staðið við áramótaheit síðasta árs.Á undirkjól í hafinu Áður en Boga byrjaði að stunda sjósund kveðst hún hafa verið með áskrift að kvefi, lungnabólgu og umgangspestum. „Það þekki ég ekki lengur enda er sjósund mikil heilsubót og hefur styrkt ónæmiskerfið til mikilla muna. Það er líka afar gott fyrir andlegu hliðina og þann styrk tek ég með mér í vinnuna og dagleg samskipti við aðra.“ Boga synti í undirkjólum, silkikjól og öðrum óhefðbundnum sundfatnaði til að skapa hverjum firði þema og segir hvern fjörð einstakt ævintýri. „Ég reyndi að gera þetta eftirminnilegt. Aðgengi var misgott og stundum þurfti ég að klöngrast niður bratta bakka en stundum óð ég út í beint af þjóðveginum,“ segir Boga og nefnir nokkra eftirminnilega firði. „Í Skálmarfirði var svo mikil fjara að ég gekk allan fjörðinn nær þurrum fótum og á 17. júní synti ég út Hafnarfjörð með íslenska fánann á lofti sem var mjög þjóðernislegt og næstum fjallkonulegt en bara mín eigin þjóðhátíð. Ég synti Breiðafjörð út frá Saurbæ, þar sem ég er fædd og uppalin, en hann stendur upp úr ásamt Skagafirði og Eyjafirði þar sem ég stakk mér til sunds frá Hrísey og ólýsanlegt að horfa á fjallahringinn úr sævi.“Boga synti 38 vestfirska firði á sex dögum í fyrrasumar. Hér er hún í Önundarfirði.mynd/úr einkasafniTómleg áramót án heita Boga skráði ferðasögu sína úr hverjum firði, ásamt lýsingu á veðri, andrúmslofti og því sem fyrir augu bar. „Ég varð aldrei hrædd á sundinu nema þá helst við að lenda í frásogi eða straumum sem bæru mig af leið. Ég kynnti mér alla firði vel áður en ég lagðist til sunds og lenti aldrei í vandræðum utan hvað sterkir straumar Súgandafjarðar toguðu mig aðeins af leið. Ég hugsaði vitaskuld út í að rekast á lík eða til dæmis háhyrninga en hvarvetna mætti mér gríðarlegt fuglalíf, selir, krabbar og smádýr og oft syntu með mér kollur með unga sína,“ segir Boga sem einnig naut útsýnis undir yfirborði sjávar. „Ég var eins og landnámsmennirnir sem sáu Ísland rísa úr sæ og sé landið mitt í nýju ljósi. Þegar ég steig á land fór ég beint á beit og át söl og að vera á sundi með blika eða himbrima og horfa í augu þeirra eins og hver önnur hafmeyja gefur nýja sýn á tilveruna og er hollt veganesti út í lífið.“ Náttúran er sjálfstæð og óútreiknanleg og því var mikilvægt að taka dagsformið með í reikninginn. „Á tímabili læddist að mér hugsun um að ég myndi ekki ná þessu og eftir Vestfirðina fór þreyta að segja til sín. Það voru mikil átök að synda átta firði á dag en líka óskaplega gaman. Þegar ég steig á land eftir síðasta sundið í Hofsósi settist að mér tregi og söknuður yfir því að sundinu væri lokið. Allan tímann var mér þó þakklæti í huga, að hafa heilsu og aðstöðu til að gera þetta, sem ekki er öllum gefið. Markmiðið var torsótt og strembið meðan á því stóð en nú finnst mér það leikandi létt í minningunni,“ segir Boga brosandi. Út frá afmælissundinu vaknaði með Bogu draumur um að henda sér út í áheitasund og synda fyrir góðgerðarmál á nýju ári. „Áramótin voru hálf tómleg nú án stórs áramótaheits en ég er þegar farin að kortleggja stöðuvötnin 55 og ég ætla að þjálfa mig betur á kajaknum mínum til að takast á við ný markmið þegar ég verð 55 ára.“
Mest lesið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Lífið „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Lífið Ástin kviknaði á Humarhátíð Lífið Rúrik nældi sér í suðræna Sóleyju Lífið Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Lífið Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi Lífið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Lífið „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið Fleiri fréttir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Sjá meira