Bannað á Facebook Ugla Egilsdóttir skrifar 2. janúar 2014 09:30 Saga Garðarsdóttir, leikkona.
Á Facebook eru ýmsar óskrifaðar reglur sem notendur eru mismeðvitaðir um. Fréttablaðið leitaði til viðmælenda sem eru þekktir fyrir glæsileg tilþrif á samfélagsmiðlum. Þeir gáfu lesendum nokkrar þumalputtareglur til þess að vinna eftir á Facebook.Ekki læka langt aftur í tímannSaga Garðarsdóttir, leikkona og Facebook-kúnstner„Það er stranglega bannað að skipta um prófílmyndir eftir klukkan 22:00 á fimmtudegi til hádegis á sunnudegi, ef maður er á lausu. Það er mark um desperasjón. Ég var næstum búin að falla í þessa gildru einu sinni. Þá sagði góður vinur minn mér þetta vegna þess að honum var annt um hjúskaparstöðu mína. Svo er stranglega bannað að læka eigin status eða komment nema maður sé í þeim mun meiri maníu. Svo er bannað að póka menn sem eru með mynd af sér með fisk eða byssu á prófílmyndinni. Þeir hafa augljóslega ekki gott af því. Svo er bannað að eyða einhverju sem maður hefur gert ef það er búið að vera inni á internetinu í 40 mínútur. Það má ekki læka langt aftur í tímann hjá einhverjum sem þú vilt ekki að viti að þú sért skotinn í, en mjög sniðugt ef þú vilt láta viðkomandi vita, og ekki læka mjög oft hjá sömu manneskjunni, nema þið séuð gift eða það sé amma þín og þú sert eina vinkona hennar. Það verður að banna fólki að læka sjálft sig nema það sé hluti af gríni sem kemur fram í status eða kommentum að ofan. Elskaðu sjálfan þig en lækaðu aðra. Ef fólk er búið að fermast eða orðið kynþroska þá má það ekki nota broskalla, og heldur ekki þetta „feeling...“ Maður á bara að þróa með sér þannig stíl að hann verði nógu skiljanlegur til að maður þurfi ekki hækjur eða viðbótarglimmerdútl. Broskallar virka auk þess yfirleitt bara passíft agressífir, en ekki vinalegir. Svo má ekki setja sjálfsmyndir þar sem sést að maður er ber að ofan, nema maður sé við Miðjarðarhafið, í gylltu baði, í rúminu með Ryan Gosling eða heiti Ásdís Rán.Stefán Pálsson, sagnfræðingur.Facebook er tilbúinn heimurStefán Pálsson, sagnfræðingur„Ég tilkynni fólk sem deilir krókódílseiturlyfjamyndum með mér. Það ætti að kenna þeim. Þetta er eitthvert jaðardóp sem blankir heróínfíklar í Rússlandi og í þremur slömmum í Cleveland nota. Líkurnar á því að ég eða nokkur sem ég þekki komist í tæri við það eru litlar. Þeir sem deila þessu telja að það hafi forvarnargildi. En Facebook er glataður forvarnarmiðill eftir að það fylltist af öfum og ömmum og unglingarnir fóru allir. Síðan er það ægilega hvimleitt þegar allir ákveða að læka og deila og hrósa greinum sem eru í sjálfu sér bara eitthvert ble, bara af því þeir eru efnilega sammála skoðun þess sem skrifar greinina. Ókei, Rás 1 var vængstífð og margir eru leiðir. Ég skil það alveg. Það gerir það ekkert réttara að taka hverja einustu grein um málið og segja „Hér hittir þessi aldeilis naglann á höfuðið.“ Það birtist ein frábær grein í íslenskum dagblöðum á viku. Miðað við Facebook mætti ætla að þær væru tíu á dag. Góður málstaður réttlætir það ekki að neyða fólk til að lesa alls konar tómt rugl. Fólk sem býr í útlöndum ætti ekki að melda sig á fund á Akureyri síðar saman daginn. Það er hallærislegt. Þó er minna hallærislegt að segjast kannski ætla að mæta (ef það skyldu opnast ormagöng). Auðvitað er Facebook notað sem auglýsingamiðill og áróðurstæki, en þá er um að gera að gæta meðalhófs. Þrír statusar á klukkutíma gefa til kynna að sá sem skrifar þá sé nánast á þráhyggjurófi. Þó að fólki detti margt fyndið í hug þá verður það að gefa sér tíma í ritstjórnarvinnu. Ef einhver vill skrifa um hvað ríkisstjórnin er vond og datt niður á sniðugan orðabrandara þá verður hann samt að hinkra í korter. Ef brandarinn gleymist á fimmtán mínútum þá er hann ekki sniðugur. Eins þarf fólk að vera sér meðvitað um að Facebook er tilbúinn heimur. Fyrir síðustu kosningar átti ég fleiri Facebook-vini sem ætluðu að kjósa Dögun en Framsóknarflokkinn. Niðurstöðurnar á kosninganótt voru í engu samræmi við það. Það er ekki vænlegt að láta það koma sér á óvart. Það er ekkert slæmt að vera montrass á Facebook, en fólk verður að gera það af metnaði. Það er afskaplega dapurt þegar hæstaréttarlögmenn á fimmtugsaldri skrifa „Híhíhíhí á Manchester United.“ Það eru svo margar leiðir til að núa salti í sár andstæðinga á kúltíveraðan og sniðugan hátt að enginn ætti að finna sig knúinn til að vera í fyrirsjáanlegri pissukeppni. Til að mynda er mun skemmtilegra að hrósa frekar stuðningsmönnum hins liðsins fyrir eitthvert léttvægt smáatriði. Það fer miklu meira í taugarnar á hinu liðinu vegna þess að það beinir sjónum að því að þeir töpuðu, hvað sem öðru líður.“ Bergsteinn Sigurðsson, útvarpsmaður.Offramboð fimmaurabrandaraBergsteinn Sigurðsson, útvarpsmaður1. Að skrifa aggresív komment hjá „vini“ sem maður þekkir lítið sem ekkert við meinlausan status. Ef maður gerir til dæmis góðlátlegt grín að ríkisstjórninni og fær komment frá einhverjum ókunnugum sem maður samþykkti í bríaríi um að þessi eða hinn stjórnmálamaður sé „gjörspilltur drulluháleistur sem ætti að segja af sér,“ er hugsanlega komið tilefni til að blokka. 2. Að skrifa status á ensku. Jú, það sleppur ef maður býr í útlöndum eða á nógu marga erlenda vini sem bregðast við og kommenta. En það er fátt hallærislegra en að skrifa status á ensku ef þeir einu sem kommenta eru Íslendingar, einkum ef þeir svara á ensku. 3. Hæverskugrobb (humblebrag). „Rosalega er erfitt að vera gagnrýninn og með ríka réttlætiskennd í þessu þjóðfélagi.“ „Úff, þessi hiti hérna í Palm Springs er alveg að drepa mig. 76 gráður! Væri alveg til í smá íslenskan sudda núna!“ „Var að fatta að ég mismælti mig aðeins í viðtalinu við BBC í dag. Vandræðalegt.“ Illa falið laumumont! Búú. 4. Mærð og helgislepja. Birtist meðal annars í að birta minningarstatus („guð blessi góðan dreng“) um hvern einasta þekktan Íslending sem fellur frá, jafnvel þótt maður hafi ekki þekkt hann neitt. 5. Statusar um „andverðleikasamfélag“ eða „góða fólkið.“ 6. Segja frá eigin hnyttnu tilsvörum. Ef niðurlag frásagnarinnar er „og þá sagði ég …“ er spaklegast að hætta strax. 7. Offramboð fimmaurabrandara og orðaleikja. Leið fyrir óöruggt fólk að fiska læk til að vega upp á móti brotinni sjálfsmynd. Brjóstumkennanlegt.Lára Björg Björnsdóttir, blaðamaður á viðskiptablaðinu.Hálfgert statusmorðLára Björg Björnsdóttir, blaðamaður á Viðskiptablaðinu„Mér finnst alltaf soldið súrt þegar einhver setur status sem er ógeðslega fyndinn og svo koma einhverjir með komment og myrða algjörlega statusinn, reka brandarann ofan í statuseigandann. Það er hálfgert statusmorð. Síðan eru matarmyndir ógeðslegar. Fólk þarf að fatta að stemningin skilar sér aldrei af matarmyndum í gegnum vefmiðla. Þetta eru fælandi myndir. Þetta vekur ekki upp þær tilfinningar sem fólk heldur. Fólk er ekki bara „Vá, hvað þú ert heppinn að vera þarna.“ Það er ekki að fara í tölvuna sína til að horfa á myndir af matnum þínum. Heimurinn er ekki svona frábær, hann er vondur og þetta er ógeð. Svo finnst mér ótrúlega steikt þegar fólk póstar hryllilegum fréttum og skrifar „hryllingur,“ þegar það er augljóst að öllum þykir atburðurinn hryllilegur. Af hverju er fólk að segja það? Þetta er svolítið „stating the obvious.“ Þá er eins og öllum sem tóku ekki undir standi á sama um slysið. Eins og fólk sé að reyna að láta sig líta betur út með því að fordæma eitthvert hræðilegt ofbeldisverk, og kenna okkur hinum að sýna samúð.“Katrín Björgvinsdóttir, framleiðandi.Hatar fólk með börn í prófílmyndKatrín Björgvinsdóttir, framleiðandi„Númer eitt hallærislegt er að opna spjallglugga hjá strák sem maður er skotinn í, ekki skrifa neitt og bara stara og sjá hvort hann sé að skrifa eitthvað. Það er langhallærislegast. Veistu ekki? Þá koma svona punktar. Síðan hata ég fólk sem er bara með börnin sín í prófílmyndum. Og náttúrulega að heita Anna og Jói, vera með sameiginlegan reikning. Ég tek læk hátíðlega, er spör á þau og lít á þau sem persónulegt hrós eða klapp á bakið frá mér. Læk eru góð ef maður fer vel með þau, en þau eru ekki góð ef maður spreðar þeim út um allt eins og garðúði, eða svona sprautari, bara pff pff pff út um allt. Þetta ætti alveg að geta haldist í hendur við sjálfsvirðinguna sem maður á að búa yfir. Maður á bara að spara þetta eins og hrós, allavega ef maður vill að einhver taki mark á einhverju sem maður segir. Það fer rosalega fátt í taugarnar á mér þannig séð á Facebook, ég er eiginlega bara þakklát fyrir að fólk sé að nota sinn prívat og persónulega tíma til þess að búa til afþreyingarefni fyrir mig. Ég skil eiginlega ekki fólk sem verður pirrað á fólki sem er alltaf að pósta og monta sig og segja og deila. Ef þetta fólk myndi ekki gera þetta þá hefðum við ekkert á Facebook til þess að lesa og dæma.“Matarlýsingar eru púkóÞórarinn Leifsson, rithöfundur„Þú ert að spyrja alkóhólista hvernig eigi að drekka. Ég hef gert nánast allt sem er hallærislegt á fésinu sjálfur, þannig að það þýðir lítið fyrir mig að gera grín að öðrum held ég. Ég nota til dæmis stundum marga broskarla í einu sem er víst algjört nó-nó. Broskallar eru ótrúlega öflug tæki. Stundum er hægt að slútta heilum leiðindaþræði með einum broskalli. En mér finnst hallærislegt þegar fólk þykist vera gáfaðra en það er með bókalistum til dæmis. Ég skautaði yfir listana. Þeir eru mjög fyrirsjáanleg skilti til að auglýsa góða og gilda íslenska menntun. Matarlýsingar af veitingastöðum og myndir af mat þykja mér púkó líka.“
Mest lesið Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Lífið „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Lífið Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Lífið Ástin kviknaði á Humarhátíð Lífið Rúrik nældi sér í suðræna Sóleyju Lífið Þorgerður brák grafin úr gleymsku Lífið Fleiri fréttir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Sjá meira