Kvikmyndahátíð í Kópavogi Ármann Kr. Ólafsson skrifar 23. september 2014 16:20 Kópavogsbær verður nú í fyrsta sinn vettvangur kvikmyndahátíðarinnar RIFF. Samstarf bæjarins við hátíðina var innsiglað síðastliði vor þegar lista- og menningarráð Kópavogs ákvað að styrkja RIFF með myndarlegu framlagi úr lista- og menningarsjóði. Sjóðurinn hefur það hlutverk að auðga menningarlíf bæjarins en í Kópavogi hafa menningarmál lengi verið í öndvegi. Fyrir hönd bæjarins fagna ég þeirri auknu fjölbreytni í menningarlífi bæjarins sem samstarfið við RIFF felur í sér. Kópavogur verður vettvangur viðburða af margvíslegu tagi á meðan á kvikmyndahátíðinni stendur. Þar má nefna kvikmyndatónleika þar sem kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Hrafninn flýgur, verður flutt við undirleik Sólstafa, málþing rithöfunda og kvikmyndagerðarfólks um það hvernig breyta má bók í bíó, bílabíó við Smáralind og stuttmyndasýning í Sundlaug Kópavogs. Þá fá skólabörn tilsögn í kvikmyndagerð og verður afraksturinn sýndur á sérstakri sýningu í Smárabíói. Vettvangur þessara viðburða er víða um bæinn en menningarhúsin í Kópavogi eru í lykilhlutverki. Þau hafa löngum verið stolt bæjarbúa og ánægjulegt að gestir RIFF kynnist þeirri góðu aðstöðu sem Kópavogur býður upp á fyrir menningar- og listviðburði. Ég vona að sem flestir njóti RIFF í Kópavogi og býð gesti og aðstandendur kvikmyndahátíðarinnar hjartanlega velkomin í bæinn. Um leið hvet ég íbúa Kópavogs til þess að taka þátt í RIFF í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason Skoðun Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson Skoðun Bönnum Rússa en ekki Ísraela Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gjafakvótakerfið sem ráðherra Viðreisnar vill ekki kannast við Jón Kaldal skrifar Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ábyrgð í útlendingamálum – breytingar og árangur Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldisstofnanir ríkisins ráðast á Ljósmyndara Kristján Logason skrifar Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason skrifar Skoðun Óalandi og óferjandi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar Skoðun Brjóstsviði á sumrin – þegar meltingin fer í sumarfrí Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Var samninganefndin að vinna eftir umboði Alþingis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hræsni siðferðisriddara Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“ Anna María Björnsdóttir skrifar Skoðun Er drónaskapur dónaskapur? Björn Steinbekk skrifar Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra Jónas B. Guðmundsson skrifar Skoðun Íslenskir bændur berskjaldaðir í boði RÚV Heiðbrá Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Kópavogsbær verður nú í fyrsta sinn vettvangur kvikmyndahátíðarinnar RIFF. Samstarf bæjarins við hátíðina var innsiglað síðastliði vor þegar lista- og menningarráð Kópavogs ákvað að styrkja RIFF með myndarlegu framlagi úr lista- og menningarsjóði. Sjóðurinn hefur það hlutverk að auðga menningarlíf bæjarins en í Kópavogi hafa menningarmál lengi verið í öndvegi. Fyrir hönd bæjarins fagna ég þeirri auknu fjölbreytni í menningarlífi bæjarins sem samstarfið við RIFF felur í sér. Kópavogur verður vettvangur viðburða af margvíslegu tagi á meðan á kvikmyndahátíðinni stendur. Þar má nefna kvikmyndatónleika þar sem kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Hrafninn flýgur, verður flutt við undirleik Sólstafa, málþing rithöfunda og kvikmyndagerðarfólks um það hvernig breyta má bók í bíó, bílabíó við Smáralind og stuttmyndasýning í Sundlaug Kópavogs. Þá fá skólabörn tilsögn í kvikmyndagerð og verður afraksturinn sýndur á sérstakri sýningu í Smárabíói. Vettvangur þessara viðburða er víða um bæinn en menningarhúsin í Kópavogi eru í lykilhlutverki. Þau hafa löngum verið stolt bæjarbúa og ánægjulegt að gestir RIFF kynnist þeirri góðu aðstöðu sem Kópavogur býður upp á fyrir menningar- og listviðburði. Ég vona að sem flestir njóti RIFF í Kópavogi og býð gesti og aðstandendur kvikmyndahátíðarinnar hjartanlega velkomin í bæinn. Um leið hvet ég íbúa Kópavogs til þess að taka þátt í RIFF í Kópavogi.
Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar
Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar
Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar
Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar
Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar
Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun