Sprotarnir teygja sig vestur Óli Örn Eiríksson skrifar 26. febrúar 2014 09:04 Flótti sprotafyrirtækja frá landinu hefur verið heitt umræðuefni undanfarið. Þessi umræða hefur kannski einkennst full mikið af neikvæðni og ástæða til þess að horfa á víðara samhengi. Væri íslenska landsliðið í knattspyrnu betra ef leikmennirnir færu ekki til útlanda og æfðu og spiluðu með bestu liðum heims? Líklegast ekki. Af hverju ætti þetta að vera öðruvísi fyrir íslensk fyrirtæki? Er það ekki gott fyrir þau að starfa í öflugustu þekkingarkjörnum heims þar sem þau eiga daglega í samskiptum við klárasta fólk sem hægt er að finna á sínu sérfræðisviði? Það á ekki að vera vandamál að aðili vilji keppa á hæsta stigi. Viðfangsefnið snýst um það á hvaða stigi það gerir það. Fer fyrirtækið út örsmátt og illa fjármagnað eða fer það út stálpað með skýra sýn á eigin styrkleika og tilbúið að sækja fram. Starfsstöðvar í Reykjavík Undanfarin ár hefur fjöldi frumkvöðla reynt að byggja upp fyrirtæki fyrir innan íslensk gjaldeyrishöft. Þróunin hefur verið sú að íslenska sprotahagkerfið virðist nú stefna hraðbyri í að verða bandarískt, þar sem bandarísk þekkingarfyrirtæki, sem reka dótturfyrirtæki eða starfsstöðvar í Reykjavík, eru í dag orðin stór hluti af nýsköpunarhagkerfi höfuðborgarsvæðisins. Íslensk þekkingarfyrirtæki sem hafa verið keypt eða fjármögnuð á undanförnum árum af bandarískum aðilum eru til dæmis Latibær, Teledyne Gavia (Hafmynd), Sabre Airlines Solutions, Decode, Nextcode Health, HS Orka (kanadískir eigendur), CRI (aftur Kanada) og Verne Global. Annað afbrigði sömu þróunar eru íslenskir frumkvöðlar sem eiga bandarísk sprotafyrirtæki sem hafa þróunarstöð á Íslandi. Þetta eru fyrirtæki eins og Plain Vanilla, Skema, Datamarket, Mobilitus og Globetracker. Skortur á englum Í þessari þróun íslensks frumkvöðlasamfélags er framtíðarþroski þess falinn. Eitt af vandamálum ungra fyrirtækja í dag er skortur á „englum“ eða fjárfestum sem koma inn með bæði fjármagn og þekkingu. Þeir frumkvöðlar sem selja fyrirtæki sín breytast í fjárfesta með góða þekkingu á uppbyggingu sprotafyrirtækis. Þótt sala sprotafyrirtækja til útlanda dýpki bæði þekkingu sprotahagkerfisins alls (í gegnum þekkingaryfirfærslu) og fjölgi (vonandi) innlendum fjárfestum þá þarf samhliða að verða til stærri fyrirtæki sem hafa sínar höfuðstöðvar á Íslandi. Það er mikill akkur fyrir borg að hýsa höfuðstöðvar alþjóðlegra fyrirtækja. Það dregur mikil umsvif til sín, fjölda starfa í utanumhaldi og starfamargfaldarinn er mikill. Borg tækifæranna Reykjavík stefnir að því að vera borg tækifæranna. Staður þar sem dugmikið fólk getur látið drauma sína rætast. Til þess að draumar frumkvöðla rætist þurfa þeir þó á einhverjum tímapunkti að fara frá Íslandi og spila í efstu deild. Best væri að héðan fari fyrirtæki stálpuð, haldi ákveðinni starfsemi eftir hér og að í borginni verði fjöldi skapandi þekkingarfólks sem bæði haldi og dragi til sín þekkingarfyrirtæki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Sjá meira
Flótti sprotafyrirtækja frá landinu hefur verið heitt umræðuefni undanfarið. Þessi umræða hefur kannski einkennst full mikið af neikvæðni og ástæða til þess að horfa á víðara samhengi. Væri íslenska landsliðið í knattspyrnu betra ef leikmennirnir færu ekki til útlanda og æfðu og spiluðu með bestu liðum heims? Líklegast ekki. Af hverju ætti þetta að vera öðruvísi fyrir íslensk fyrirtæki? Er það ekki gott fyrir þau að starfa í öflugustu þekkingarkjörnum heims þar sem þau eiga daglega í samskiptum við klárasta fólk sem hægt er að finna á sínu sérfræðisviði? Það á ekki að vera vandamál að aðili vilji keppa á hæsta stigi. Viðfangsefnið snýst um það á hvaða stigi það gerir það. Fer fyrirtækið út örsmátt og illa fjármagnað eða fer það út stálpað með skýra sýn á eigin styrkleika og tilbúið að sækja fram. Starfsstöðvar í Reykjavík Undanfarin ár hefur fjöldi frumkvöðla reynt að byggja upp fyrirtæki fyrir innan íslensk gjaldeyrishöft. Þróunin hefur verið sú að íslenska sprotahagkerfið virðist nú stefna hraðbyri í að verða bandarískt, þar sem bandarísk þekkingarfyrirtæki, sem reka dótturfyrirtæki eða starfsstöðvar í Reykjavík, eru í dag orðin stór hluti af nýsköpunarhagkerfi höfuðborgarsvæðisins. Íslensk þekkingarfyrirtæki sem hafa verið keypt eða fjármögnuð á undanförnum árum af bandarískum aðilum eru til dæmis Latibær, Teledyne Gavia (Hafmynd), Sabre Airlines Solutions, Decode, Nextcode Health, HS Orka (kanadískir eigendur), CRI (aftur Kanada) og Verne Global. Annað afbrigði sömu þróunar eru íslenskir frumkvöðlar sem eiga bandarísk sprotafyrirtæki sem hafa þróunarstöð á Íslandi. Þetta eru fyrirtæki eins og Plain Vanilla, Skema, Datamarket, Mobilitus og Globetracker. Skortur á englum Í þessari þróun íslensks frumkvöðlasamfélags er framtíðarþroski þess falinn. Eitt af vandamálum ungra fyrirtækja í dag er skortur á „englum“ eða fjárfestum sem koma inn með bæði fjármagn og þekkingu. Þeir frumkvöðlar sem selja fyrirtæki sín breytast í fjárfesta með góða þekkingu á uppbyggingu sprotafyrirtækis. Þótt sala sprotafyrirtækja til útlanda dýpki bæði þekkingu sprotahagkerfisins alls (í gegnum þekkingaryfirfærslu) og fjölgi (vonandi) innlendum fjárfestum þá þarf samhliða að verða til stærri fyrirtæki sem hafa sínar höfuðstöðvar á Íslandi. Það er mikill akkur fyrir borg að hýsa höfuðstöðvar alþjóðlegra fyrirtækja. Það dregur mikil umsvif til sín, fjölda starfa í utanumhaldi og starfamargfaldarinn er mikill. Borg tækifæranna Reykjavík stefnir að því að vera borg tækifæranna. Staður þar sem dugmikið fólk getur látið drauma sína rætast. Til þess að draumar frumkvöðla rætist þurfa þeir þó á einhverjum tímapunkti að fara frá Íslandi og spila í efstu deild. Best væri að héðan fari fyrirtæki stálpuð, haldi ákveðinni starfsemi eftir hér og að í borginni verði fjöldi skapandi þekkingarfólks sem bæði haldi og dragi til sín þekkingarfyrirtæki.
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar