Svona kemurðu í veg fyrir túrverki Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 22. janúar 2014 20:30 Vignir Þór Bollason. Mynd/einkasafn
Vignir Þór Bollason er nemandi við Life University í Atlanta í Bandaríkjunum. Hann er þar í doktorsnámi í kírópraktík og skrifar áhugaverða færslu á bloggið sitt um hvernig hægt sé að koma í veg fyrir tíðarverki. „Ég heyrði frásögn mjög farsæls doktors í Kírópraktík í dag þar sem hann talaði um hvernig konur geta komið í veg fyrir túrverki án þess að taka verkjalyf eða önnur lyf. Oftast taka konur verkjalyf við túrverkjum 2-3 yfir daginn og það í jafnvel 3-4 daga. Ef konur taka verkjatöflur frá kynþroska og fram á þrítugsaldurinn (segjum í 10 ár) þá erum við að tala um 96-120 töflur sirka á ári eða um 1000 töflur af verkjalyfjum á 10 árum. Það er ekki bara mikill kostnaður sem því fylgir heldur líka getur þetta valdið skemmdum í nýrum,“ skrifar Vignir. Hann bætir við að konur ættu að sleppa öllum dýraafurðum nokkrum dögum fyrir tíðar. „Þessi doktor sagði okkur frá því hvað hann hefur séð margar konur losna við túrverki með mjög einföldu ráði, en segir að það hafi þó ekki virkað fyrir allar konur. Því mundi það ekki skaða að prófa þetta. Hann segir sem sagt að 3-4 dögum áður en konur fara á túr eigi þær að sleppa öllum mat sem kemur frá dýrum, aðallega rauðu kjöti sem og öðru kjöti m.a. fisk og sniðganga allar mjólkurvörur. Í staðinn borða kornvörur (grains), ávexti, grænmeti og drekka nóg vatn í þessa 3-4 daga áður en blæðingar byrja. Þetta einfalda ráð hefur komið í veg fyrir túrverki hjá fjölda kvenna.“ Viktor vonar að bloggfærslan eigi eftir að hjálpa einhverjum konum og leyfði birtingu færslunnar á Lífinu á Visir.is. „Ég er ekki að neyða neinn til að gera þetta heldur bara að reyna að miðla þessu ráði, en af frásögnum að dæma þá hefur þetta virkað fyrir margar konur. Margar voru svo hamingjusamar að þær komu hlaupandi í átt að honum næst þegar þær sáu hann til að þakka fyrir. Ég vona að þetta virki fyrir þig ef þú prófar þetta. Mér þætti gaman að fá að heyra af þessu sjálfur ef ég þyrfti að díla við túrverki mánaðarlega en þar sem ég get ekki prófað þetta sjálfur og sagt ykkur hvort þetta virkar eða ekki verð ég að deila þessu með ykkur. Vona að þetta eigi eftir að hjálpa einhverjum konum.“
Mest lesið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira