Veit ekki hver kom sér til bjargar Bjarki Ármannsson skrifar 14. desember 2014 17:45 Nokkrar þeirra mynda sem Sigurður deilir á Facebook-síðu sinni. Myndir/Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður fór ansi illa út úr síðasta hjólreiðatúr sínum í gær. Hann datt þá á hjólinu sem hann var að prufa í fyrsta sinn, braut bein í vinstri hendinni og hlaut talsverðar skrámur á andliti. Hann deilir myndum af áverkunum á Facebook-síðu sinni í dag og í gær en kveðst í samtali við Vísi allur að koma til. „Heilsan er svona að verða betri,“ segir Sigurður. „Ég tók eina vitlausa ákvörðun og flaug á hausinn, skóf andlitið frá auga og niður á kinn.“ Sigurður segist hafa verið að prufa svokallað Fatboy-hjól sem hann var með í láni. „Það eru hjól með breiðum dekkjum til að hjóla í snjó og sandi og svoleiðis,“ útskýrir hann. „Það var smá hálka sem ég var að reyna að forðast og ég hjólaði á það sem ég hélt að væri hóll. En það var bara svona barð og ég fór fram af því.“ Sem betur fer sáu gangandi vegfarendur hvað gerðist og hringdu á sjúkrabíl. Sigurður segist ekki vita hvaða fólk það var sem kom honum til aðstoðar. „Ég þarf að komast að því. Þetta voru einhverjir tveir góðir menn á Seltjarnarnesinu, maður og kona.“ Lögmaðurinn þekkti var ekki lengi á spítalanum en verður í gifsi í þrjár vikur. Hann segir það hafa skipt miklu að hann var með hjálm, eins og alltaf þegar hann fer að hjóla. „Annars væri ég bara í steik,“ segir hann. Innlegg frá Sigurður Guðni Guðjónsson. Innlegg frá Sigurður Guðni Guðjónsson.
Mest lesið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Lífið samstarf Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Lífið Fleiri fréttir Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Sjá meira