Alvarleg mistök löggjafans Grétar Jónasson skrifar 16. október 2014 07:00 Tíu ár eru liðin síðan umfangsmikil breyting var gerð á lögum um sölu fasteigna. Ný heildarlöggjöf var sett sem hefur að geyma eina stærstu neytendalöggjöf landsins. Meginefni laganna var vernd neytenda í almennt stærstu viðskiptum fólks á lífsleiðinni. Lögin áttu að fela í sér ríkar réttarbætur og neytendur m.a. að geta treyst að milligöngunni sinntu einungis einstaklingar sem hið opinbera hefði veitt réttindi á grundvelli margháttaðra strangra krafna, þ.e. hinn löggilti fasteignasali. Nú tíu árum síðar hefur flest það sem löggjafinn ætlaði að tryggja farið úrskeiðis. Alvarlegum mistökum löggjafans má þar um kenna, en galopinn og óljós lagatexti hefur valdið ríkri óvissu um hvað sé gildandi réttur. Sé líkindamáli beitt hefur hljóð og mynd engan veginn farið saman við framkvæmd laganna undanfarin 10 ár. Vegna óskýrleika hafa eftirlitsaðilar lítið getað tekið á málum er varðar grundvallarþætti þeirrar neytendaverndar er lögin áttu að tryggja. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp sem samið var á árinu 2007 sem illu heilli er síst betra en gildandi lög. Þar er lagt til að felld verði brott skylda fasteignasala sem opinberra sýslunarmanna að fylgja ströngum siðareglum gagnvart neytendum. Auk þess er lagt til að lokað verði á ferli sem leitt hefur til að öll alvarlegustu svik gagnvart neytendum sl. 10 ár hafa komist upp! Fennt hefur í sporin og lærdómur sem draga átti af hruninu, m.a. af skýrslu rannsóknarnefndar og nefndar um siðferði, virðist gleymdur. Félag fasteignasala, Neytendasamtökin og Húseigendafélagið hafa í sameiningu bent á alvarlega ágalla frumvarpsins með engum árangri. Þegar svo illa hefur tekist til sem raun ber vitni við setningu grundvallarlaga um fasteignaviðskipti í landinu ætti hver þingmaður að staldra við og gæta að því að bætt sé úr. Fólk á rétt á að því sé tryggð örugg umgjörð í almennt stærstu viðskiptum sínum á lífsleiðinni, því fer hins vegar fjarri í frumvarpinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Sjá meira
Tíu ár eru liðin síðan umfangsmikil breyting var gerð á lögum um sölu fasteigna. Ný heildarlöggjöf var sett sem hefur að geyma eina stærstu neytendalöggjöf landsins. Meginefni laganna var vernd neytenda í almennt stærstu viðskiptum fólks á lífsleiðinni. Lögin áttu að fela í sér ríkar réttarbætur og neytendur m.a. að geta treyst að milligöngunni sinntu einungis einstaklingar sem hið opinbera hefði veitt réttindi á grundvelli margháttaðra strangra krafna, þ.e. hinn löggilti fasteignasali. Nú tíu árum síðar hefur flest það sem löggjafinn ætlaði að tryggja farið úrskeiðis. Alvarlegum mistökum löggjafans má þar um kenna, en galopinn og óljós lagatexti hefur valdið ríkri óvissu um hvað sé gildandi réttur. Sé líkindamáli beitt hefur hljóð og mynd engan veginn farið saman við framkvæmd laganna undanfarin 10 ár. Vegna óskýrleika hafa eftirlitsaðilar lítið getað tekið á málum er varðar grundvallarþætti þeirrar neytendaverndar er lögin áttu að tryggja. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp sem samið var á árinu 2007 sem illu heilli er síst betra en gildandi lög. Þar er lagt til að felld verði brott skylda fasteignasala sem opinberra sýslunarmanna að fylgja ströngum siðareglum gagnvart neytendum. Auk þess er lagt til að lokað verði á ferli sem leitt hefur til að öll alvarlegustu svik gagnvart neytendum sl. 10 ár hafa komist upp! Fennt hefur í sporin og lærdómur sem draga átti af hruninu, m.a. af skýrslu rannsóknarnefndar og nefndar um siðferði, virðist gleymdur. Félag fasteignasala, Neytendasamtökin og Húseigendafélagið hafa í sameiningu bent á alvarlega ágalla frumvarpsins með engum árangri. Þegar svo illa hefur tekist til sem raun ber vitni við setningu grundvallarlaga um fasteignaviðskipti í landinu ætti hver þingmaður að staldra við og gæta að því að bætt sé úr. Fólk á rétt á að því sé tryggð örugg umgjörð í almennt stærstu viðskiptum sínum á lífsleiðinni, því fer hins vegar fjarri í frumvarpinu.
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar