Myndar 1/1000 af íbúafjölda Íslands Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 16. janúar 2014 11:20
Varya Lozenko er rússneskur ljósmyndari sem á sér það markmið að mynda 1/1000 af íbúafjölda Íslands. Verkefni hennar ber yfirskriftina 320 Íslendinga verkefnið. Ástæða fjöldans er að hún vill að hver einstaklingur sem hún myndar standi fyrir hverja þúsund Íslendinga. „Ég vissi ekkert um landið sjálft en vissi að Björk væri þaðan. Ég heillaðist samstundis af landinu. Ég heillaðist af íbúum landsins, hversu friðsælt það er og hversu vel náttúran hefur verið varðveitt. Mér þótti hver einasti einstaklingur sem ég hitti einstakur og ákvað þá að hefja þetta verkefni.“ Fyrirsæturnar velur Varya af handahófi. Hún tekur myndir af fólki á öllum aldri og úr ólíkum þjóðfélagshópum. Myndatökurnar eru óskipulagðar og engum er stillt upp fyrir tökurnar.Viktor Ragnar Þorvaldsson, íbúi á Höfn í Hornafirði og þjónn á Kaffi Horninu, er meðal þeirra sem varð á vegi Varyu. „Hún átti leið hjá Kaffi Horninu. Hún fékk sér kaffi og spurði svo hvort hún mætti taka mynd af mér. Stuttu síðar tók hún mynd af fjölskyldu bróður míns í Vík í Mýrdal. Það var algjör tilviljun.“ segir Viktor. Varya er hálfnuð með verkefni sitt og stefnir hún á að klára það í vor og að verkefninu loknu ætlar hún að opna ljósmyndasýningu. Hægt er að skoða myndir Varyu á Facebook síðu hennar. Að lokum er Varya spurð, eins og aðrir erlendir ferðamenn sem koma til Íslands; Hvernig líkar þér Ísland? „Ísland og Íslendingar. Ég elska ykkur.“ segir Varya.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Sjá meira