Búa til app upp úr verðlaunabarnabók Gunnar Leó Pálsson skrifar 31. maí 2014 14:30 Hér eru Viðar Friðriksson og félagar í Fancy Pants Global að sprella í sólinni en þeir komu fyrir í myndskeiði í morgunþætti í Bandaríkjunum á dögunum þegar fjallað var um appið. mynd/einkasafn „
Við vorum ráðnir til þess að láta sýn Friedmans verða að veruleika,“ segir Viðar Friðriksson, forritari hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Fancy Pants Global, en fyrirtækið vinnur nú hörðum höndum að smíði á appi upp úr vinsælli bandarískri barnabókaseríu. Barnabókaserían sem kallast Maurice's Valises fjallar um aldraða mús sem ferðast hefur um heiminn og boðar góð og gæfurík gildi en höfundur bókana er Jerry S. Friedman. „Jerry kom á fund til okkar í haust og vildi búa til app. Hann kom með hugmynd til okkar en var byrjaður að vinna þetta með bandarísku fyrirtæki en hann var ekki hrifinn af því og var honum bent á líta til Íslands, enda mikil gróska hér á landi,“ segir Viðar um upphaf samstarfsins. Fancy Pants Global sjá þó ekki eingöngu um appsmíðina því fyrirtækið brýtur bækurnar um og hefur einnig búið til heimasíðu fyrir barnabókaseríuna. Viðar segir verkefnið krefjandi og skemmtilegt. „Þetta er virkilega skemmtilegt verkefni og við gerum ráð fyrir að appið verði tilbúið um mitt sumar, það er hannað fyrir spjaldtölvur, bæði iPad og Android-spjaldtölvur,“ bætir Viðar við.Maurice’s ValisesMaurice's Valises hefur fengið mikla athygli vestanhafs og var meðal annars fjallað um appsmíðina í morgunþætti Keye TV í Texas í Bandaríkjunum á dögunum. „Frideman er búinn að skrifa ellefu bækur og fjórar af þeim eru komnar út. Það er gaman að þetta skuli vekja athygli enda mjög góður boðskapur í sögum Friedmans.“ Friedman, sem hefur alla tíð unnið sem atvinnuljósmyndari, er á sjötugsaldri og fékk hugmyndina að bókinni þegar hann settist í helgan stein og gerðist þá rithöfundur. „Hann hefur farið út um allan heim og séð margt, það endurspeglast í músinni í bókunum, því hún fer út um allt.“ Viðar og félagar í Fancy Pants Global hafa í nógu að snúast og eru með mörg fleiri spennandi verkefni á prjónunum. „Við erum að þróa tölvuleiki og fleiri spennandi verkefni eru framundan,“ bætir Viðar við. Friedman hefur alla sína tíð starfað sem atvinnuljósmyndari og var mikið viðriðinn tískubransann framan af ferli. Hann þreyttist svo á tískuljósmyndun og fór að mynda annað. Hann gaf út bókina Earth’s Elders, þar sem hann myndaði einstaklinga sem höfðu náð 110 ára aldri. Bókin seldist upp í þremur upplögum og vann til verðlauna. Friedman fékk mann að nafni Chris Beatrice til þess að myndskreyta bækurnar í barnabókaseríunni Maurice’s Valises. Beatrice hefur til dæmis unnið til verðlauna fyrir myndskreytingar í bókum um Ferðir Gullivers og Róbinson Krúsó. Í appinu spila krakkar tölvuleiki og leysa þrautir, þar sem þau geta unnið sér inn stig. Þau geta svo notað stigin til þess að láta gott af sér leiða í ýmsum góðgerðarmálum.
Mest lesið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira